Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.2.2026 | 8:04 Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Verið er að byggja nýja brú yfir Ölfusá austan við Selfoss. Ljósmynd/Vegagerðin Vegagerðin hefur sett fram tillögu að gjaldskrá veggjalds fyrir nýja Ölfusárbrú sem byggir á reynslu frá Hvalfjarðargöngum og Vaðlaheiðargöngum og yrðu magnafslættir í boði fyrir minni bifreiðar. Er lagt til að stakt gjald fyrir ferð um Ölfusárbrú yrði 495 krónur á verðlagi í október 2028 þegar brúin verður opnuð en jafnframt verði veittur magnafsláttur þannig að gjaldið yrði lægst um 250 krónur á ferð. Miðað er við að gjaldskrá yrði endurskoðuð árlega með tilliti til verðlagsbreytinga. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu um Hringveg um Ölfusá sem gerð var í janúar og er birt á vef Alþingis. Nú er áætlað að umferð um eldri Ölfusárbrú sé um 15 þúsund bílar á dag en brúin verður áfram í notkun, með þungatakmörkunum, eftir að ný Ölfusárbrú verður opnuð. Í stöðuskýrslunni segir í umfjöllun um viðskiptaáætlun brúarinnar að án tillits til veggjalds sé áætlað að umtalsverður fjöldi vegfarenda nýti eldri brú áfram, eða tæplega 60%. Þá sé áætlað að um 40% myndu fara um nýja Ölfusárbrú ef ekkert veggjald yrði innheimt. Miðað við framsetningu á viðskiptaáætlun sé áætlað að það hlutfall verði nokkuð lægra, eða um 36% af heildinni, og 64% fari þá um eldri brú. Við þá greiningu sé m.a. horft til reynslu af innheimtu veggjalda í Hvalfjarðargöngum og Vaðlaheiðargöngum og greiningu sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri vann með Vegagerðinni um greiðsluvilja vegfarenda. Byggt á forsendum þeirrar greiningar er áætlaður greiðsluvilji vegfarenda um nýja Ölfusárbrú á bilinu 470-550 kr. Umferðarspá um brúna á opnunarárinu 2028, án áhrifa gjaldtöku á umferð, er um 7.225 bílar á dag. Árið 2040 er áætluð umferð 10.025 bílar á dag. Þegar tekið er tillit til áhrifa gjaldtöku er áætlað að umferð verði um 10% minni, eða um 6.500 bílar á dag á opnunarári og um 9.000 árið 2040. Áætlað er að töluvert magn umferðar fari áfram um eldri brú, eða um 10.500-11.000 bílar árið 2028. Framkvæmdir við brúna ganga samkvæmt áætlun. Á vef Vegagerðarinnar segir að m arkmiðið með framkvæmdunum sé að auka afkastagetu Hringvegar, aðskilja akstursstefnur og bæta umferðar ­ öryggi. Helsta breytingin sem framkvæmdin hafi í för með sér sé að Hringvegurinn styttist um 1,2 km og ferðatími styttist að lágmarki um fimm til sex mínútur en mun meira á álagstímum. Einnig muni greiðast úr þeim umferðarteppum sem oft hafi skapast við gömlu Ölfusárbrúna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Með öxi á lofti á bensínstöð Íhugaði að fjárfesta í EMI til að ná í konur Loksins á ÓL fjórum árum eftir hörmulegt slys Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Tvöföld veikindi hjá því opinbera Andrew laus en enn til rannsóknar Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Slökkviliðið brást við efnaleka í HR Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ ETS-kerfið skekkir samkeppnisstöðu Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Með öxi á lofti á bensínstöð Íhugaði að fjárfesta í EMI til að ná í konur Loksins á ÓL fjórum árum eftir hörmulegt slys Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Slökkviliðið brást við efnaleka í HR Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ ETS-kerfið skekkir samkeppnisstöðu Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article