Verslunarkjarni hefur vaxið hratt austast á Selfossi undanfarin misseri og nýjasta verslunin við Larsenstræti er Álnó sem var áður Álnavörubúðin í Hveragerði. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, segir nálægðina við nýja Ölfusárbrú laða fyrirtæki að og heilmikil uppbygging sé fyrirhuguð báðum megin árinnar. „Já við finnum það að það er mjög mikill áhugi fyrirtækja að koma hérna á svæðið til okkar núna og það hefur áhrif jú að vegurinn er að færast og nýja brúin er að koma inn þannig að fyrirtækin eru að leitast eftir lóðum nálægt þjóðveginum.“ Álnó nýjasta viðbótin Bragi segir stefna í að verslun og þjónusta við nýju brúna muni eflast verulega beggja megin Ölfusár á næstu árum. Verslunin Álnó, sem áður var Álnavörubúðin, opnaði í verslunarkjarnanum Austurgarði á dögunum. Hún starfaði í Hveragerði í 38 ár. Penninn/Eymundsson færði sig nýlega úr miðbænum á Selfossi og yfir í Austurgarð. Og er þörf fyrir allar þessar verslanir á Selfossi eða er þessi nýi kjarni samkeppni við nýja miðbæinn sem hefur verið byggður upp síðastliðin ár? „Selfoss og svæðið í kring er þekkt fyrir öfluga verslun og þjónustu. Við erum að þjónusta mjög stórt svæði, bæði aðra íbúa á Suðurlandi og síðan gesti sem eru þarna á hverjum degi á ferðinni, þannig að við heyrum það á fyrirtækjum að þó að það bætist við þá eflist frekar bara verslun og þjónusta fyrir alla þannig að viðbótin sem er að koma hérna austan í bæinn og síðan miðbærinn sem hefur verið að byggjast upp á undanförnum árum það hefur bara styrkt alla undanfarin ár og frekar bæst í. Þannig að samkeppnin er af hinu góða,“ segir Bragi.