Viðskiptablaðið greindi í dag frá viðskiptum M&M Partners ehf. með bréf í Nova. Félagið er í eigu Margrétar Tryggvadóttur, fyrrverandi forstjóra Nova og eiginmanns hennar Magnúsar Sigurjónssonar. Athugasemd hefur borist vegna fréttarinnar. Í fréttinni sem birtist skömmu eftir hádegi segir að M&M Partners ehf. hafi bætt „við sig 24,7 milljónum hlutum í Nova í febrúar, samkvæmt breytingum á lista yfir stærstu hluthafa félagsins. Miðað við meðalgengi hlutabréfa Nova í mánuðinum má ætla að kaupverðið hafi verið í kringum 108 milljónir króna.“ Athugasemd hefur borist vegna fréttarinnar og hljóðar hún svo: „Í ljósi umfjöllunar vb.is í dag um viðskipti Margrétar Tryggvadóttur, fyrrverandi forstjóra Nova, og M&M Partners ehf., með hlutabréf í Nova Klúbbnum hf., hefur þeirri ábendingu verið komið á framfæri að viðskipti M&M Partners, sem er í jafnri eigu Margrétar og Magnúsar Sigurjónssonar, eiginmanns hennar, hafi ekki verið hefðbundin kaup á almennum markaði, heldur framsal á hlutabréfunum frá Margréti til M&M Partners. Þannig hafi Margrét ekki með viðskiptunum verið að auka samanlagðan hlut sinn í Nova Klúbbnum hf.“