Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tapa 291 milljón en binda vonir við um­breytingar

This article is a financial report for the Icelandic company Sýn and does not describe a security vulnerability, threat, or technical exploit. Therefore, none of the requested technical details (vulnerability description, CVSS score, affected versions, fixed version, or workaround) are applicable or present in the source material.
Read Full Article →

Sýn tapaði 291 milljón króna á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 344 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Tekjur félagsins jukust um 3,6% milli ára og af­koma var um­fram áætlanir stjórn­enda. Heildar­tekjur Sýnar námu 5,5 milljörðum króna á fyrsta árs­fjórðungi og jukust um 191 milljón króna frá sama tíma í fyrra. Leiðrétt fyrir áhrifum af Senda­félaginu nam tekju­vöxturinn 6,5%. Tekjur af kjarna­starf­semi félagsins, það er inter­neti, farsíma, fjölmiðlun og aug­lýsingasölu, jukust um 11,7% milli ára. EBIT­DA­aL nam 842 milljónum króna á fjórðungnum og jókst um 44,9% frá fyrsta árs­fjórðungi síðasta árs, þegar EBIT­DA­aL nam 581 milljón króna. Rekstrar­tap félagsins fyrir fjár­magns­liði og skatta dróst saman úr 141 milljón króna í 79 milljónir króna. Tap eftir skatta nam 291 milljón króna og minnkaði um 53 milljónir króna milli ára. Her­dís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar, segir fyrsta árs­fjórðung stað­festa að að­gerðir og um­breyting síðasta árs séu að skila árangri. „Tekjur halda áfram að vaxa, EBIT­DA­aL hækkar um nær helming á milli ára og hand­bært fé frá rekstri eykst,“ segir Her­dís í til­kynningu. Fjölmiðlatekjur jukust mest í krónum talið Hún segir sam­einingu vöru­merkja undir merkjum Sýnar, ein­faldara vöru­fram­boð og sam­runa dóttur­félaga inn í móðurfélagið hafa skilað lægri rekstrar­kostnaði og bættri fram­legð. Launa­kostnaður lækkaði um 6,1% milli ára og stöðu­gildi voru 375 á fjórðungnum, saman­borið við 410 á fyrsta fjórðungi í fyrra. Tekjur af fjölmiðlun jukust mest í krónum talið, eða um 287 milljónir króna, og námu 1,9 milljörðum króna. Það jafn­gildir 17,3% hækkun milli ára. Í til­kynningu félagsins segir að auknar tekjur í fjölmiðlun skýrist meðal annars af veru­legri fjölgun áskrif­enda að íþróttastöðvum Sýnar. Farsíma­tekjur jukust um 13,8% og námu 908 milljónum króna, en aug­lýsinga­sala jókst um 9,4% og nam 658 milljónum króna. Á móti drógust tekjur af hýsingar- og rekstrar­lausnum saman um 52,8%, tekjur af IoT-þjónustu lækkuðu um 45,2% og vöru­sala dróst saman um 5,5%. Tekjur frá Senda­félaginu námu 87 milljónum króna, saman­borið við 223 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Rekstrar­kostnaður félagsins nam 4,3 milljörðum króna og lækkaði um 1% milli ára. Kostnaðar­verð seldra vara og þjónustu nam 2,3 milljörðum króna og jókst um 2,7%, en félagið segir kostnaðar­verð hafa lækkað milli ára að teknu til­liti til 97 milljóna króna aukins beins kostnaðar til Senda­félagsins vegna breytts rekstrar­fyrir­komu­lags. Annar rekstrar­kostnaður lækkaði um 1,1%. Fjár­festingar námu 837 milljónum króna og jukust um 358 milljónir króna milli ára. Hækkunin skýrist einkum af fjár­festingu í sýningarréttum á enska boltanum, sem var ekki inni í saman­burðartölum fyrra árs, auk þess sem fjár­festingar á fyrsta fjórðungi 2025 voru óvenju­lega lágar. Fjár­festingar í sýningarréttum námu 586 milljónum króna á fjórðungnum. Af­skriftir námu 1,2 milljörðum króna og jukust um 17% milli ára, einkum vegna aukinna af­skrifta á sýningarrétti á enska boltanum. Á móti lækkuðu af­skriftir rekstrar­fjár­muna eftir sölu eigna til Senda­félagsins. Hand­bært fé frá rekstri nam 1,1 milljarði króna og jókst um 206 milljónir króna milli ára. Félagið fékk 938 milljóna króna greiðslu frá Senda­félaginu vegna endur­greiðslu seljandaláns og nýtti hana til niður­greiðslu skulda. Rekstrar­lán lækkuðu um 908 milljónir króna á fjórðungnum. Hreinar vaxta­berandi skuldir án leigu­skuld­bindinga námu 5,7 milljörðum króna í lok mars og lækkuðu um rúman milljarð frá áramótum. Hreinar vaxta­berandi skuldir með leigu­skuld­bindingum námu 18 milljörðum króna og lækkuðu um 1,1 milljarð króna frá árs­lokum. Eigin­fjár­hlut­fall félagsins var 26,1% í lok fjórðungsins. Sýn er nú í einka­viðræðum við Símann um sölu á vef- og út­varps­miðlum félagsins. Her­dís segir að gangi salan eftir muni hún styrkja efna­hags­reikning félagsins og skapa aukið svigrúm til að efla kjarna­rekstur til framtíðar. Sjá einnig Síminn að kaupa vef- og út­varps­miðla Sýnar „Eins og kunnugt er tók félagið ákvörðun um að ganga til einka­viðræðna við Símann hf. um sölu á vef- og út­varps­miðlum félagsins. Gangi salan eftir mun hún styrkja efna­hags­reikning félagsins sem skapar aukið svigrúm til að efla kjarna­rekstur til framtíðar,“ segir Her­dís Dröfn Félagið stað­festir áður birta af­komu­spá fyrir árið 2026. Stjórn­endur gera ráð fyrir að EBIT­DA­aL verði 4,2 til 4,4 milljarðar króna á árinu, fjár­festingar 3,2 til 3,4 milljarðar króna og EBIT­DA­aL að frá­dregnum fjár­festingum 800 til 1.200 milljónir króna. Sýn mun ekki birta árs­hluta­reikning fyrir fyrsta og þriðja árs­fjórðung í samræmi við heimild í lögum og stefnu félagsins um ein­földun og skil­virkni. Félagið mun fram­vegis birta sex mánaða reikning og árs­reikning, en frétta­til­kynningar vegna fyrsta og þriðja árs­fjórðungs.

Share this article