- What: Stock market performance of Icelandic companies
- Impact: Financial market activity in Iceland
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,2% í 3,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tíu félög aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins og sjö lækkuðu. Mesta veltan, eða um 630 milljónir króna, var með hlutabréf Kviku banka sem birti uppgjör eftir lokun markaðarins í gær. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi hjá Kviku nam 15,7% á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 7,8% á sama tíma í fyrra. Sjá einnig Arðsemi Kviku tvöfaldaðist milli ára Hlutabréfaverð Kviku hækkaði um 0,9% og stendur nú í 16,6 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra frá því að tilkynnt var um viðræðuslit milli bankans og Arion banka um mögulegan samruna. Meðal annarra félaga sem hækkuðu í viðskiptum dagsins voru Heimar, sem birtu einnig uppgjör í gær. Gengi fasteignafélagsins hækkaði um 0,5% í 19 milljóna króna veltu og stendur nú í 36,4 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Heima hefur hækkað um 6% í vikunni og hefur ekki verið hærra síðan um miðjan marsmánuð. Sjá einnig 18% tekjuvöxtur hjá Heimum Gengi Alvotech hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 6,4% í 150 milljóna króna veltu og stendur nú í 451 krónu á hlut. Gengi augnlyfjaþróunarfélagsins lækkaði mest eða um 2,9% og stendur nú í 450 milljóna króna veltu. Hlutabréfaverð Amaroq, sem birti uppgjör fyrir opnun markaða í morgun, lækkaði um 1,2% í 250 milljóna króna veltu og stendur nú í 172 krónum á hlut. Málmleitarfélagið greindi frá því að hafa skilað hagnaði í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þá stendur nú yfir fjárfestadagur hjá félaginu í London. Sjá einnig Amaroq skilar hagnaði í fyrsta sinn