Viðskipti | mbl | 7.5.2026 | 16:45 Afkoma Sýnar umfram áætlanir á fyrsta fjórðungi Höfuðstöðvar Sýnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Sýn hf. skilaði betri afkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026 en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og segir félagið niðurstöðuna endurspegla áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Segir þar að heildartekjur hafi numið um 5,46 milljörðum króna og hafi aukist um 3,6% á milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu hafi vöxturinn verið 6,5% og verið þar borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins; interneti, farsíma, fjölmiðlun og auglýsingasölu, þar sem tekjur jukust um 11,7% á milli ára. Frétt af mbl.is Síminn að kaupa miðla Sýnar Skuldir lækkað um rúman milljarð „Samhliða vexti kjarnatekna skilaði markvisst kostnaðaraðhald sér í verulega bættri afkomu. EBITDAaL nam 842 m.kr. á fjórðungnum og hækkaði um 44,9% milli ára. Rekstrartap (EBIT) dróst saman um 63 m.kr., úr 141 m.kr. tapi í 79 m.kr. tap. Fjárfestingar jukust um 358 m.kr. milli ára og námu 837 m.kr., einkum vegna fjárfestingar í sýningarrétti á Enska boltanum en einnig voru fjárfestingar á samanburðartímabilinu óvenjulega lágar. Þá var EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum jákvætt um 5 m.kr. á fjórðungnum,“ segir í tilkynningunni. Þá nam handbært fé frá rekstri 1.056 m.kr. og jókst um 206 m.kr. milli ára. Auk þess hafa hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga lækkað um rúman milljarð á fjórðungnum. Frétt af mbl.is Tekjur Sýnar yfir sex milljarða Aðgerðir og umbreyting að skila árangri „Fyrsti ársfjórðungur 2026 staðfestir að aðgerðir og umbreyting síðasta árs eru að skila árangri. Tekjur halda áfram að vaxa, EBITDAaL hækkar um nær helming á milli ára og handbært fé frá rekstri eykst. Sameining vörumerkja undir merkjum Sýnar, einfaldara vöruframboð og samruni dótturfélaganna inn í móðurfélagið hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði og bættri framlegð. Launakostnaður lækkar um 6,1% milli ára og endurspeglar bæði fækkun stöðugilda og þá hagræðingu sem náðst hefur með einföldun skipulags. Stöðugildi voru 375 á tímabilinu samanborið við 410 á fyrsta fjórðungi 2025,“ er haft eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar. Þá hafi sala farnetsdreifikerfa til Sendafélagsins, sem lokið var á síðasta ári, haft jákvæð áhrif á efnahag félagsins á fjórðungnum. Endurgreiðsla á seljandaláni frá Sendafélaginu að fjárhæð 938 m.kr. hafi styrkt lausafjárstöðu og gert félaginu kleift að lækka rekstrarlán um 908 m.kr. á fjórðungnum. Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafi þannig lækkað um rúman milljarð frá áramótum. „Eins og kunnugt er tók félagið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. um sölu á vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Gangi salan eftir mun hún styrkja efnahagsreikning félagsins sem skapar aukið svigrúm til að efla kjarnarekstur til framtíðar. Við fórum inn í árið með traustari grunn, einfaldari rekstur og skýra forgangsröðun um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Samhliða því verður áfram lögð áhersla á að bæta arðsemi í fjarskiptum og fjölmiðlum og að nýta þau tækifæri sem skapast með einfaldara skipulagi,“ er haft eftir Herdísi. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Gjaldþrot og tálsýn opinbers rekstrar Sigurður Már Jónsson Pólitísk þjónusta Ríkisútvarpsins Fleira áhugavert Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Bílstjóri rútunnar réttindalaus þegar hún valt Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Ragna Klara nýr framkvæmdastjóri Signicat á Íslandi Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Tekjur Alvotech drógust saman Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Arion hagnaðist um 7,3 milljarða Sameinast undir vörumerki SoftwareOne Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Indó hæst á Sjálfbærniásnum annað árið í röð Arion hagnaðist um 7,3 milljarða Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Syndis sækir fram í Skandinavíu Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi FDA í óboðaðri eftirlitsferð hjá Alvotech Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Pistlar » Sigurður Már Jónsson Gjaldþrot og tálsýn opinbers rekstrar Sigurður Már Jónsson Pólitísk þjónusta Ríkisútvarpsins Fleira áhugavert Bílstjóri rútunnar réttindalaus þegar hún valt Stefnir í sögulegt afhroð fyrir Starmer Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Ragna Klara nýr framkvæmdastjóri Signicat á Íslandi Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Tekjur Alvotech drógust saman Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Arion hagnaðist um 7,3 milljarða Sameinast undir vörumerki SoftwareOne Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Indó hæst á Sjálfbærniásnum annað árið í röð Arion hagnaðist um 7,3 milljarða Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Syndis sækir fram í Skandinavíu Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi FDA í óboðaðri eftirlitsferð hjá Alvotech Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður
The provided article is a financial earnings report for the Icelandic telecom/media company Sýn, detailing revenue growth, EBITDA improvements, and debt reduction. It contains no information about a software vulnerability, threat, attack vector, CVSS score, affected versions, fixed versions, or security workarounds. Therefore, a technical security summary cannot be generated from this content.