- What: Sýn reports profit in the fourth quarter
- Impact: Company reports improved financial performance after a loss in the previous year
Fjölmiðla- og fjarskiptafélagið Sýn hagnaðist um 122 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi, samanborið við 1,2 milljarða króna tap á sama tíambili í fyrra, en leiðrétt fyrir virðisrýrnun var tapið á fjórða ársfjórðungi 2024 33 milljónir króna. Félagið tapaði hins vegar 634 milljónum króna á árinu 2025 í heild sinni, samkvæmt nýbirtu ársuppgjöri félagsins. „Árið 2025 var umbreytingarár hjá Sýn sem markaði ákveðin tímamót hjá félaginu. Við tókum stefnumótandi ákvarðanir sem renna styrkari stoðum undir reksturinn og móta fyrirtækið til lengri tíma litið,” segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. „Þrátt fyrir krefjandi aðstæður sýna niðurstöður fjórða ársfjórðungs að aðgerðir ársins eru að skila árangri. Við stöndum því á traustari grunni og förum inn í næsta tímabil með einfaldari rekstrargrunn, skýrari stefnu og aukna getu til að skapa sjálfbæran og arðbæran vöxt. Tekjur Sýnar námu 22 milljörðum króna á árinu í heild sinni og jukust um 1,5% frá fyrra ári. Tekjuvöxtur á fjórða ársfjórðungi nam 6%. EBITDA-hagnaður félagsins jókst um 1,9% milli ára og nam 4,7 milljörðum króna. EBIT-afkoma var jákvæð um 312 milljónir, samanborið við 657 milljóna króna rekstrartap árið áður. Í afkomutilkynningu Sýnar kemur fram að EBITDAaL hafi numið 1.339 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi, sem samsvarar 32,3% aukningu milli ára. Afkomuspá Sýnar gerir ráð fyrir að EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum verði á bilinu 800-1.200 milljónir króna á árinu 2026. Eignir Sýnar í árslok 2024 námu 30,9 milljörðum króna og eigið fé var rúmlega 8 milljarðar króna.