Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hafna 56 milljarða dala yfir­töku­til­boði GameStop

  • What: eBay rejected a $56 billion takeover offer from GameStop.
  • Impact: The offer, proposed by GameStop's CEO, was deemed untrustworthy and not in the best interest of eBay shareholders.
Read Full Article →

Stjórn netverslunarfyrirtækisins eBay hefur hafnað 56 milljarða dala yfirtökutilboði frá tölvuleikjasölunni GameStop. Á vef WSJ segir að tilboðið hafi komið frá forstjóra GameStop, Ryan Cohen, í síðustu viku þar sem GameStop bauð 125 dali fyrir hvern hlut í eBay. Fyrir birtingu tilboðsins stóðu hlutabréf eBay í rúmlega 104 dölum á hvern hlut og nam markaðsvirði félagsins um 45 milljörðum dala. Til samanburðar nemur markaðsvirði GameStop um 11 milljörðum dala en forstjóri tölvuleikjasölunnar hefur vakið mikla athygli undanfarin ár sem nokkurs konar leiðtogi svokallaðra meme-hlutabréfa. Sjá einnig GameStop gerir 55 milljarða dala tilboð í eBay Samkvæmt bréfi sem stjórn eBay sendi Cohen og var birt í dag kemur fram að tilboðinu hafi verið hafnað þar sem það væri hvorki trúverðugt né aðlaðandi fyrir hluthafa félagsins. Þar var meðal annars vísað til óvissu um fjármögnun viðskiptanna og rekstraráhættu sem gæti fylgt sameiningu félaganna. Cohen hafði til að mynda mætt í sjónvarpsviðtal á CNBC þar sem hann veitti takmarkaðar upplýsingar um hvernig ætti að fjármagna kaupin. Forstjórinn mætti í leðurjakka með óskýran bakgrunn og svaraði spurningum með því að vísa á vefsíðu félagsins.

Share this article