Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

GameStop gerir 55 milljarða dala tilboð í eBay

Read Full Article →

Bandaríska tölvuleikja- og safngripaverslunin GameStop tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi leggja fram 55 milljarða dala kauptilboð í eBay. Tilboðið hljóðar upp á 125 dali fyrir hvern hlut í eBay, sem samsvarar 20% álagi á dagslokagengi félagsins á föstudaginn. Í frétt NYT er bent á að GameStop sé aðeins með níu milljarða dala í reiðufé og að markaðsvirði nemi 11 milljörðum dala. Markaðsvirði eBay sé hins vegar 46 milljarðar dala og þykir því yfirtaka ólíkleg. Ryan Cohen, forstjóri GameStop, segir í samtali við WSJ að hann sjá tækifæri til að gera eBay að stærra fyrirtæki á sviði netverslunar en Amazon. Hann upplýsti jafnframt um að Gamestop hafi þegar byggt upp 5% hlut í eBay. „eBay ætti að vera - og mun verða - miklu meira virði,“ sagði Cohen. „Ég er að hugsa um að breyta eBay í eitthvað sem verður hundruð milljarða dala virði.“ GameStop var mikið til umræðu árið 2021 þegar starfsmenn fjárfestingasjóðanna Citron Research og Melvin Capital ákváðu að taka stöðu gegn GameStop með skortsölu. Þeir spáðu lækkun á hlutabréfaverði félagsins enda var GameStop orðin nokkurs konar tímaskekkja eftir að sala tölvuleikja fór að færast yfir á netið. Netverjar byrjuðu í kjölfarið að fjárfesta í GameStop til að keyra upp gengi félagsins. Skortsalarnir töpuðu háum fjárhæðum í byrjun áður en hlutabréfaverð GameStop fór að lækka og stendur í rúmum 26 dölum á hlut í dag.

Share this article