Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Starmer var varaður við tengslum Mandelsons og Epsteins

Read Full Article →

Peter Mandelson vildi fá greitt sem nemur meira en 90 milljónum króna þegar hann var rekinn úr embætti sendiherra í september vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Í áreiðanleikaskýrslu sem var gerð við skipan Mandelsons í embætti sendiherra í Bandaríkjunum voru bresk stjórnvöld vöruð við hættu á því að orðspor þeirra gæti óhreinkast. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í gögnum sem voru birt í dag vegna skipan Mandelsons. Fyrir fram var skýrslan talin líkleg til að vekja upp enn fleiri spurningar um ákvörðun Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, um að tilnefna Mandelson sem sendiherra þrátt fyrir vitneskju um tengsl við Epstein. Í bréfi sem Starmer var sent 11. desember 2024, níu dögum áður en Mandelson var staðfestur í embætti sendiherra, var honum tjáð að skýrsla sem bankinn JP Morgan hafði pantað árið 2009 hefði leitt í ljós „sérlega náið“ samband Mandelsons við Epstein eftir að hann var hann sakfelldur fyrir að hafa falast eftir vændi af stúlkum undir lögaldri. Mandelson fékk 75 þúsund pund greidd eftir að hann lét af embætti, það jafngildir um 12,7 milljónum króna. Gögnin sýna hins vegar að hann bað upphaflega um 547.201 pund sem eru ríflega 92 milljónir íslenskra króna. Annað sem kemur fram í skjölunum sem birt voru í dag er að Jonathan Powell, pólitískur ráðgjafi Starmers, þótti skipun Mandelsons gerð í „undarlegum flýti“. Búist er við að fleiri skjöl verði birt tengd skipan Mandelsons. Fréttin var uppfærð með frekari upplýsingum úr skjölunum.

Share this article