Búist er við að hundruð skjala tengdum skipun Peter Mandelsons sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum verði birt á miðvikudaginn. Meðal þeirra skjala sem talin eru að birt verði, er áreiðanleikaskýrsla forsætisráðuneytisins um Mandelson. Þetta kemur fram í frétt breska fjölmiðilsins The Guardian um birtingu skjalanna. Skýrslan er talin líkleg til að vekja upp enn fleiri spurningar um ákvörðun Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands, um að tilnefna Mandelson sem sendiherra þrátt fyrir vitneskju um tengsl Mandelsons við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Heimildir Guardian herma að skýrslan hafi varað Starmer við því að skipun Mandelsons gæti skaðað orðstír Starmers. Meðal skjalanna sem birt verða eru samskipti milli skrifstofa ríkisstjórnarinnar, forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins um Mandelson, sem og umfjöllun fjölmiðla um tengsl Mandelsons og Epsteins. Mandelson var rekinn úr embætti sendiherra í september. Hann sagði af sér úr lávarðadeildinni og Verkamannaflokknum í febrúar eftir birtingu skjala í Epstein-málinu. Breskir þingmenn fóru fram á að skjölin um skipun hans yrðu gerð opinber eftir að spurningar vöknuðu um það hvernig hann var metinn fyrir skipunina í stöðu sendiherra. Mandelson var handtekinn í febrúar vegna gruns um misferli í starfi og fyrir að hafa lekið trúnaðarupplýsingum þegar hann var viðskiptaráðherra í stjórnartíð Gordons Brown forsætisráðherra. Hann var síðar leystur úr varðhaldi gegn tryggingu. Mandelson hefur ávallt neitað því að hafa brotið af sér í opinberu starfi og hefur beðið fórnarlömb Epstein afsökunar á því að hafa viðhaldið tengslum við Epstein.