Evrópusambandið hefur hleypt af stokkunum opinberri spillingarrannsókn á meintum brotum Peter Mandelson meðan hann var viðskiptastjóri sambandsins frá 2004 til 2008. Rannsakendur á vegum sambandsins staðfesta við The Telegram að rýnt sé í öll samskipti Mandelson sem finna má í Epstein-skjölunum til að meta hvort hann hafi mögulega gerst sekur um fjársvik, spillingu og alvarlegt misferli þess fjögur ár. Að öðru leyti vilja rannsakendur fátt segja og ekki er vitað hvort sérstakar ásakanir hafi orðið kveikja rannsóknarinnar. Mandelson sætir lögreglurannsókn í heimalandinu Bretlandi vegna tengslanna við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Hver er Peter Mandelson og hvaða tengsl hafði hann við Jeffrey Epstein? Peter Mandelson er áhrifamaður í breska Verkamannaflokknum. Eða var , öllu heldur. Mandelson sagði skilið við flokkinn í febrúar til að kasta ekki frekari rýrð á hann vegna tengsla sinna við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Mandelson var ráðherra í tíð Tonys Blair forsætisráðherra og háttsettasti ráðherra ríkisstjórnar Gordons Brown á eftir Brown sjálfum. Þegar Verkamannaflokkurinn komst aftur til valda 2024 með stórsigri Keirs Starmer var Mandelson gerður að sendiherra í Bandaríkjunum, þar sem hann þótti hafa lag á Donald Trump. Mandelson var skipaður skömmu eftir að Trump tók við völdum. Mandelson þekkti Jeffrey Epstein vel og samband þeirra virðist hafa verið nokkuð náið, jafnvel eftir að Epstein var dæmdur fyrir að hafa milligöngu um vændi tveggja kvenna, þar af ólögráða stúlku. Mandelson gisti í húsi í eigu Epsteins á meðan hann sat inni. Mandelson sætir lögreglurannsókn vegna gruns um að hann hafi þegið fé frá Epstein í tíð sinni sem ráðherra og látið honum í té viðkvæmar upplýsingar innan úr bresku stjórnkerfi, sem jafnvel vörðuðu þjóðaröryggi Bretlands. Starmer rak Mandelson sem sendiherra þegar dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hóf að birta Epstein-skjölin og í ljós kom að samband þeirra var mun nánara en hann hafði látið í veðri vaka. Hann var rekinn sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum vegna málsins, sem hefur veikt stöðu forsætisráðherrans Keirs Starmer verulega. Hann segir útilokað að hann hefði skipað Mandelson sendiherra hefði hann vitað að hann stóðst ekki öryggisskoðun utanríkisráðuneytisins. Mandelson hefur verið sakaður um að leka viðkvæmum opinberum upplýsingum, sem jafnvel vörðuðu þjóðarhag, í Epstein og þiggja fé fyrir.