Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mandelson látinn laus gegn tryggingu

  • What: Peter Mandelson, former UK ambassador, released on bail after arrest for suspicion of misconduct in public office.
  • Impact: Allegations involve passing market-sensitive info to Jeffrey Epstein.
Read Full Article →

Lundúnalögreglan hefur sleppt Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, gegn tryggingu. Hann var handtekinn á heimili sínu í gær vegna rannsóknar á meintu misferli hans í opinberu starfi. Mandelson er grunaður um að hafa lekið innherjaupplýsingum til bandaríska kaupsýslumannsins og barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Þeim var vel til vina. Staða forsætisráðherrans Keirs Starmer veiktist mjög vegna málsins, þegar á daginn kom að hann vissi af sambandi Mandelson við Epstein þegar hann skipaði hann sendiherra. Mandelson var rekinn úr því starfi í september og sagði sig úr Verkamannaflokknum og hætti í lávarðadeild breska þingsins eftir birtingu milljóna skjala tengdum Epstein fyrr í febrúar. Mandelson hefur ekki tjáð sig opinberlega um ávirðingarnar en samkvæmt fréttum BBC segist hann hvorki hafa brotið af sér né látið stjórnast af fjárhagslegum ásetningi í samskiptum við Epstein. Tölvupóstsamskipti benda til að Mandelson hafi sem innanríkisráðherra í forsætisráðherratíð Gordons Brown veitt Epstein viðkvæmar upplýsingar innan úr stjórnkerfinu, jafnvel hvað snertir þjóðaröryggi.

Share this article