Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óvissu­stigi lýst yfir vegna snjó­flóða­hættu í Súða­vík­ur­hlíð Ásrún Aldís Hreinsdóttir RÚV / Jóhannes Jónsson Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Spáð er hríðarveðri næstu daga. Gul viðvörun tekur gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi Vestra á morgun og er viðvörunin í gildi fram til föstudagsmorguns. Snjókoma eða skafrenningur verður á norðanverðu landinu á morgun, einkum norðvestantil, slydda við norðausturströndina en úrkomulítið sunnan heiða. Hægt er að fylgjast með færðum á vegum á vef Vegagerðarinnar. Fyrir 3 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þrenna Valverde á móti City Federico Valverde skoraði öll þrjú mörk Real Madríd í 3-0 sigri liðsins á Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Ævintýri norska liðsins Bodö/Glimt halda svo áfram. Fyrir 11 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Orkumál IEA heim­il­ar stærstu losun ol­íu­forða í sögu stofn­un­ar­inn­ar Alþjóðaorkumálastofnunin hefur heimilað stærstu losun á olíuforða í sögu sinni til að draga úr olíuverðhækkunum vegna árása Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. 400 milljón tunnum af olíu verður hleypt á markað úr varasjóðum. Fyrir 30 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Þessi hlutu Ís­lensku mynd­list­ar­verð­laun­in 2026 Íslensku myndlistarverðlaunin voru veitt í kvöld. Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins, Hildur Elísa Jónsdóttir hlaut hvatningarverðlaun og Rúrí var heiðruð fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Fyrir 47 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Tinda­stóll úr leik í Evrópu eftir hetju­lega bar­áttu Tindastóll féll í kvöld úr keppni í ENBL Evrópukeppni karla í körfubolta. Skagfirðingar töpuðu fyrir lettneska liðinu Rigas Zelli í 16-liða úrslitum keppninnar á Sauðárkróki. Úrslitin urðu 101-94 fyrir Rigas Zelli. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Ungar stjörn­ur blómstra í Litlu hryll­ings­búð­inni Félagslífið og allt sem tengist leiklistinni - segja nemendur í Langholtsskóla í Reykjavík að standi upp úr eftir margra vikna æfingaferli. Þau setja nú upp söngleikinn um Litlu hryllingsbúðina. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sam­fylk­ing­in og fé­lag­ar bjóða fram í fyrsta sinn í 20 ár í Ölfusi Ásrún Aldís Hreinsdóttir Aðsend Samfylkingin og félagar bjóða í fyrsta skipti í 20 ár fram lista í Ölfusi. Gunnsteinn R. Ómarsson mun leiða listann en hann gengdi sjálfur embætti bæjarstjóra Ölfus frá 2013-2018. Gunnsteinn starfar í dag sem framkvæmdarstjóri Sameyki. Í tilkynningu segir að Gunnsteinn komi ekki til með að sækjast eftir embætti bæjarstjóra aftur heldur muni hann miðla sinni reynslu inn í bæjarstjórn næstu fjögur árin. Samfylkingin og félagar í Ölfusi hafa gert samkomulag við bæjarstjóraefni utan listans sem verður kynntur til leiks þegar nær dregur kosningum. Þá segir að um reynslumikla manneskju í sveitarstjórnarmálum sé að ræða. Hér má sjá hverjir skipa 1.-14. sæti listans. Aðsend Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Enn óvíst hvenær eða hvort PCC nær að ræsa vél­arn­ar - „Þing­menn sýna þessu af­skap­lega lítinn áhuga“ Atvinnulausum hefur fjölgað á Húsavík og tugir flutt burt úr bænum, eftir að vinnsla var stöðvuð í kísilveri PCC. Formanni stéttarfélags í Þingeyjarsýslum þykir ráðamenn áhugalausir um stöðuna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Hval­reki í Kjálka­firði Hnúfubak rak á land í Kjálfafirði á austanverðum Vestfjörðum, hvalurinn var dauður þegar komið var að honum. Greint er frá hvalrekanum í Bæjarins bestu, þar er sagt að um fullorðið dýr sé að ræða. Samkvæmt gátlista MAST um förgun hvalshræs er fyrsti valkostur að leyfa hræinu að vera á sínum stað og leyfa náttúrunni að hafa sinn gang. Ef hræið veldur hins vegar miklum ama, mengun eða slyshættu, eru aðrar förgunaraðgerðir að urða hræið eða sökkva því á hafi úti Þá segir einnig að ekki sé unnt að þvinga landeigenda til þess að fjarlægja hvalreka á eigin kostnað og verði því opinberir aðilar að sinna slíkum málum. RÚV / Aðsend RÚV / Aðsend Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Röskva gerir at­huga­semd­ir við sátt­mála rekt­ors og Stúd­enta­ráðs Stúdentahreyfingin Röskva gerir athugasemdir við sáttmála á milli rektors HÍ og Stúdentaráðs sem undirritaður var í dag. Röskva telur hreyfinguna Vöku brotlega við skyldur sínar sem felist meðal annars í að koma athugasemdum Stúdentaráðs á rektor. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Heima: Finnum alltaf okkar heima hjá þeim sem við elskum og virðum Gauti Kristmannsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár á Rás 1, rýnir í Heima eftir Judith Hermann í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Bræður hand­tekn­ir í tengsl­um við spreng­ingu við sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Ósló Þrír bræður hafa verið handteknir í Noregi vegna gruns um að hafa komið fyrir sprengju við sendiráð Bandaríkjanna í Ósló sem sprakk aðfaranótt sunnudags. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þurfa að eiga þetta við eigin sam­visku Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík segist ekki gera kröfu um að borgarfulltrúar sem hafa gengið til liðs við Miðflokkinn segi sig frá störfum. Þau þurfi að eiga það við eigin samvisku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Stefnt að ein­föld­un hlut­verks Haf­rann­sókna­stofn­un­ar Lagt er til að lögbundið hlutverk Hafrannsóknastofnunar verði einfaldað og skýrt með áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist ESB í hart við Fen­eyjatví­ær­ing­inn vegna þátt­töku Rússa Rússar hyggjast taka þátt á Feneyjatvíæringnum í myndlist í ár í fyrsta sinn síðan 2019. Þetta hefur mætt mikilli mótstöðu. 22 evrópskir menningarmálaráðherrar hafa krafist þess að stjórn tvíæringsins endurskoði þátttöku Rússa á hátíðinni. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Enska ekki lengur alls­ráð­andi á Spoti­fy Lög sem eru sungin á ensku eru ekki lengur allsráðandi á streymisveitunni Spotify samkvæmt nýjum gögnum. Sextán tungumál koma við sögu í vinsælustu lögum síðasta árs. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hryðjuverkamálið Hæsti­rétt­ur til­tek­ur veru­lega an­n­marka á dómi Lands­rétt­ar Hæstiréttur finnur að fjölmörgum þáttum í dómi Landsréttar í hryðjuverkamálinu. Rétturinn telur dómstólinn ekki hafa farið í heildstætt mat á gögnum málsins og ekki metið það í samhengi við vopnalagabrot sem þeir voru sakfelldir fyrir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­her notaði úrelt gögn við árás­ina á stúlkna­skól­ann Bandaríkjaher sprengdi í loft upp stúlknaskóla í Íran sökum þess að úrelt gögn voru notuð við árásina. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum rannsóknar sem herinn vinnur sjálfur. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Verk­tak­ar META í Kenía sjá not­end­ur snjall­gler­augna af­klæða sig „Í sumum myndböndum getur maður séð einhvern á klósettinu eða að afklæða sig,“ segir verktaki META í Kenía við Svenska Dagbladet. Sjö milljón pör af Ray-Ban snjallgleraugum META seldust árið 2025. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hryðjuverkamálið Reiðu­bún­ir að takast á við nýja máls­með­ferð „Ég fæ ekki betur séð en að það þurfi að endurtaka allar spilanir og skýrslutökur,“ segir verjandi Sindra Snæs Birgissonar. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Segir fram­leið­end­ur gera morð dóttur sinnar að skemmti­efni Móðir danskrar stúlku sem myrt var árið 2016 hefur gagnrýnt nýja heimildarþáttaröð á Netflix sem fjallar meðal annars um morðið. Hún vænir framleiðendur um að gera dauða dóttur sinnar að skemmtiefni. Framleiðendur vísa ásökunum móðurinnar á bug. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Leik­dag­ur: Dapur seinni hálf­leik­ur í Novi Sad eftir góða byrjun Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði gegn Serbíu í undankeppni EM 2027, 92-66. Ísland leiddi nær allan fyrri hálfleik. Liðið komst sjö stigum yfir um miðjan fyrsta leikhluta, 13-20. Staðan var jöfn í hálfleik, 40-40, en seinni hálfleikur var eign Serba. Ísland er í neðsta sæti riðilsins eins og er. Liðið mætir Portúgal 17. mars næstkomandi. Hér má sjá umfjöllun um leikinn, tölfræði og tilþrif. SAMANTEKT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hæsti­rétt­ur þyngir refs­ingu Sham­su­din-bræðra og sam­verka­manns Hæstiréttur þyngdi í dag fangelsisdóm Landsréttar yfir tveimur bræðrum og þriðja manni fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Hæstiréttur horfði meðal annars til fyrri dóma í sambærilegum málum við ákvörðun sína. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Vill hækka há­marks­refs­ingu fyrir höf­unda­laga­brot Ráðherra menningarmála vill að litið verði á hugverkastuld til jafns við annars konar þjófnað. Hann vill að hámarksrefsing við höfundalagabrotum verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í sex. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Níundi borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn í start­hol­un­um Þriggja manna óháður borgarstjórnarflokkur fyrrverandi Sjálfstæðisfólks tekur formlega til starfa á föstudaginn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hryðjuverkamálið „Við verðum bara að spyrja að leiks­lok­um“ Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ríkissaksóknari segir niðurstöðuna ekki koma sér í opna skjöldu en verjandi segir hana vera vonbrigði fyrir umbjóðanda sinn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starm­er var var­að­ur við tengsl­um Mand­el­sons og Ep­steins Í áreiðanleikaskýrslu vegna tilnefningar Peters Mandelson sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum var varað við hættu á að orðspor breskra stjórnvalda gæti óhreinkast vegna tengsla Mandelsons við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Stefán Vagn tekur við af Ingi­björgu sem þing­flokks­for­mað­ur Fram­sókn­ar Stefán Vagn Stefánsson tekur við þingflokksformennsku Framsókna

Share this article