Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 43 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Óvissu­stig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­vík­ur­hlíð Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gæti vegurinn lokað með stuttum fyrirvara. Verið er að moka hlíðina en þar er stillt en úrkoma. Vegagerðin og Veðurstofan fylgjast vel með stöðu mála. Súðavíkurhlíð í desember. Vegagerðin Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hell­is­heiði lokuð vegna veðurs – björg­un­ar­sveit á leið­inni Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Hellisheiði hefur verið lokuð vegna veðurs. Umferð er beint í gegnum þrengslin á meðan verið er að vinna úr ástandinu. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er björgunarsveit á leiðinni. Hellisheiði. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Dóra Björt ekki á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Dóra Björt Guðjónsdóttir verður ekki á lista Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í kvöld segist Dóra virða niðurstöðu uppstillingarnefndar og muni áfram styðja flokkinn. ,,Viðmið uppstillingarnefndar um breiða samstöðu um skipanir ofarlega á lista gagnast frekar óumdeildara fólki. Það er vilji til breytinga. Án þess að kveða upp neinn dóm um hvort þetta sé rétt eða sanngjörn nálgun þá virði ég niðurstöðuna og mun áfram leggja mitt á vogarskálarnar svo Samfylkingin nái árangri," segir Dóra Björt. Dóra Björt verður ekki á lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 48 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukar í úrslit eftir sigur fyrir framan fulla höll af Hafn­firð­ing­um Haukar eru komnir í bikarúrslit karla í handbolta eftir 21-25 sigur gegn erkifjendum sínum í FH. Bikarúrslitahelgin fer fram í Ásvöllum og var fullt út úr dyrum þar í kvöld. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur 2.000 far­þeg­ar sátu fastir á þriðju klukku­stund Um 2.0000 millilandafarþegar sátu veðurtepptir inni í flugvélum á Reykjavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í dag, sumir á þriðju klukkustund. Tvær vélar eru farnar aftur af stað til Keflavíkur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar 84% þeirra sem hófu gæslu­varð­hald í fyrra voru er­lend­ir rík­is­borg­arar Um og yfir eitt hundrað refsidómar fyrnast á hverju ári. Fangelsin eru yfirfull og meirihlutinn eru útlendingar, segir fangelsismálastjóri. Hátt í 800 bíða refsivistar og fer fjölgandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Regína skipar sjö­unda sæti Sam­fylk­ing­ar Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ verður í sjöunda sæti framboðslista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Þetta segir í tilkynningu frá flokknum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Við­eig­andi að kalla þetta kyrr­stöðu­verð­bólgu Aðalhagfræðingur Kviku banka segir viðeigandi að tala um kyrrstöðuverðbólgu þegar horft er á íslenska hagkerfið. Hann telur að vaxtalækkunarferli Seðlabankans sé komið á pásu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hill­ary Clint­on vill að Trump verði yf­ir­heyrð­ur um Ep­stein Hillary Clinton er nú í yfirheyrslu í bandaríska þinginu vegna Epstein-skjalanna. Í skýrslutökunum skoraði hún á þingið að kalla Donald Trump til yfirheyrslu um sín tengsl við Jeffrey Epstein. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Leggja til skipan í stjórn Ís­lands­banka Mist Þormóðsdóttir Grönvold Tilnefningarnefnd Íslandsbanka hefur gefið út lista yfir þá sem lagt er til að verði kjörnir í stjórn Íslandsbanka hf. Kosningar fara fram á aðalfundi bankans 19. mars. Í tilkynningu Íslandsbanka segir jafnframt að lagt sé til að Heiðar Guðjónsson verði endurkjörinn sem formaður stjórnar. Listinn er svohljóðandi: Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Helga Hlín Hákonardóttir, stjórnarmaður Margrét Pétursdóttir, stjórnarmaður Stefán Pétursson, stjórnarmaður Stefán Sigurðsson, stjórnarmaður Valgerður Hrund Skúladóttir, stjórnarmaður Herdís Gunnarsdóttir, varastjórn Magnús E. Björnsson, varastjórn Aðalfundur fer fram 19. mars. Ragnar Visage / RÚV Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Grind­vík­ing­ar ráða skóla­stjóra til að stýra sam­rekn­um leik- og grunn­skóla Bæjarstjórn Grindavíkur ætlar að ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Markmiðið með ráðningunni er að tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf í bænum næsta haust. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fallið frá bygg­ingu ung­linga­skóla við Skauta­höll­ina Borgarráð samþykkti tillögu um að falla frá byggingu unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði tillöguna fram. Hún segir að finna þurfi betri staðsetningu í samráði við hagsmunahópa. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Áhrifa­vald­ur hvetur fylgj­end­ur til að merja and­lits­bein með hamri Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum hvetja ungmenni til að ganga býsna langt til að uppfylla staðalímynd um útlit. Meðal annars að sprauta í sig ólöglegum lyfjum og merja andlitsbein. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ic­elandair býðst til að sinna Ísa­fjarð­ar­flugi fyrir meira en tvö­falda kostn­að­ar­áætl­un Vega­gerð­ar­inn­ar Icelandair var eina flugfélagið sem bauð í rekstur á áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Tilboð félagsins, upp á um 3,5 milljarða, var langt yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðaði upp á 1,3 milljarða. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hagn­að­ur Brims og Ic­eland Sea­food jókst milli ára Brim hagnaðist um 8,7 milljarða króna á liðnu ári og Iceland Seafood hagnaðist um 1,1 milljarð króna. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Má ekki skil­greina AfD sem öfga­sam­tök Þýskur dómstóll hefur úrskurðað að leyniþjónustu Þýskalands sé óheimilt að skilgreina þjóðernisflokkinn AfD, sem öfgahægrisamtök, í það minnsta í bili. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsréttur Steina sak­felld í Lands­rétti en vill áfrýja til Hæsta­rétt­ar Landsréttur hefur sakfellt Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðing, fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn var kveðinn upp í dag. Steinu er ekki gerð refsing. Hún hefur falið verjanda sínum að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þurftu að hverfa frá Kefla­vík vegna veðurs Sjö flug á vegum Icelandair hafa þurft að lenda á Reykjavíkurflugvelli og á Akureyri vegna slæmra veðurskilyrða í Keflavík. Röskunin gæti haft áhrif á flugáætlun Icelandair síðdegis. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 265 millj­ón­ir í nið­ur­greiðsl­ur vegna efna­skipta­að­gerða er­lend­is Sjúkratryggingar Íslands greiddu rúmar 265 milljónir í endurgreiðslur vegna efnaskiptaaðgerða Íslendinga erlendis árið 2024. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vara við nýju fíkni­efni Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við nýju fíkniefni sem þau hafa gert upptæk. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Segir Kúbu verja sig gegn öllum hryðju­verka­árás­um Forseti Kúbu segir að landið mun verja sig af festu og ákefð gegn hvaða hryðjuverkum sem eru. Þetta er viðbragð við þegar kúbverska strandgæslan skaut fjóra til bana á hraðbáti við strendur landsins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Tveir flutt­ir á Land­spít­al­ann eftir árekst­ur á Suð­ur­landi Hópslysaáætlun var virkjuð vegna áreksturs á Suðurlandi í dag. Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Átta voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Börn bíða jafn­vel í þrjú ár eftir að komast á bið­lista Stjórnvöld þurfa að ráðast til atlögu gegn langri bið barna eftir þjónustu opinberra stofnana, segir umboðsmaður barna. Biðlistar segi ekki alla söguna því börn bíði gjarnan árum saman eftir frumgreiningu áður en þau komast á biðlista eftir þjónustu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Nor­egs­kon­ung­ur út­skrif­að­ur af sjúkra­húsi Hallgrímur Indriðason Sjúkrahúsið sem Haraldur dvaldi á á Tenerife. EPA / ALBERTO VALDES Haraldur fimmti Noregskonungur, sem hefur verið á sjúkrahúsi á Tenerife síðan á þriðjudag, hefur verið útskrifaður. Haraldur var í fríi á eyjunni þegar hann var fluttur á sjúkrahús vegna sýkingar í fæti og ofþornunar. Hann var staddur þar í einkaerindum ásamt Sonju drottningu. Haraldur er 89 ára og elsti starfandi þjóðhöfðingi í Evrópu. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Wuther­ing Heights: Í greip­um gredd­unn­ar „Það býr frábær mynd í öllum þeim fínu áttum sem myndin sveiflast á milli,“ segir Kolbeinn Rastrick í Lestinni á Rás 1 um „Wuthering Heights“ í leikstjórn Emerald Fennell. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Und­ir­ald­an, þú veist aldrei hvað kemur næst... Það var voru ansi ólíkir þættir af Undiröldu í þessari viku á Rás 2, annars vegar lífrænir og flauelsmjúkir tónar á þriðjudag og hins vegar ferskir og ungæðingslegir tónar úr grasrótinni á fimmtudag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Gísli Rafn hættir hjá Rauða kross­in­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Gísli Rafn Ólafsson er hættur sem framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Í tilkynningu frá samtökunum segir að samkomulag um þetta hafi náðst milli stjórnar og hans. Arna Harðardóttir fjármálastjóri tekur við verkefnum framkvæmdastjóra þar til eftirmaður Gísla Rafns hefur verið ráðinn. Gísli Rafn Ólafsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Toppi far­ald­urs­ins lík­lega náð Brynjólfur Þór Guðmundsson Síðustu fjórar vikur hafa þrettán að meðaltali greinst með inflúensu í hverri viku. Faraldurinn hófst fyrr í vetur en síðustu ár en virðist nú vera á undanhaldi. Flest voru smitin í vikunum fyrir jól en þau hafa verið mun færri það sem af er ári. Í síðustu viku greindust fimmtán með RS-veirusýkingu, flest voru smitin þremur vikum fyrr. Læknir sinnir gesti á heilsugæslu. Mynd úr safni. RÚV / Kristinn Þ

Share this article