- What: Political party announces candidate for mayor in Ölfus
- Impact: Local election news
Aðsend Samfylkingin og félagar bjóða í fyrsta skipti í 20 ár fram lista í Ölfusi. Gunnsteinn R. Ómarsson mun leiða listann en hann gengdi sjálfur embætti bæjarstjóra Ölfus frá 2013-2018. Gunnsteinn starfar í dag sem framkvæmdarstjóri Sameyki. Í tilkynningu segir að Gunnsteinn komi ekki til með að sækjast eftir embætti bæjarstjóra aftur heldur muni hann miðla sinni reynslu inn í bæjarstjórn næstu fjögur árin. Samfylkingin og félagar í Ölfusi hafa gert samkomulag við bæjarstjóraefni utan listans sem verður kynntur til leiks þegar nær dregur kosningum. Þá segir að um reynslumikla manneskju í sveitarstjórnarmálum sé að ræða. Hér má sjá hverjir skipa 1.-14. sæti listans.Aðsend