Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Það var ekkert handsalað þegar við fórum“

  • What: Political developments in Hafnarfjord
  • Impact: Local political news, not relevant to cybersecurity
Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.5.2026 | 17:55 „Það var ekkert handsalað þegar við fórum“ Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. mbl.is/Kristófer Liljar Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Valdimar hafnar ásökunum um trúnaðarbrest Nýr meirihluti: Berglind Ósk bæjarstjóri Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ » Fleiri tengdar fréttir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins í bæjarfélaginu, segir það hafa komið á óvart að vera ásakaður um trúnaðarbrest og óheilindi. Hann segir krefjandi stöðu komna upp varðandi meirihlutaviðræður í bænum en segir Framsóknarflokkinn enn tilbúinn til samstarfs og útiloka engan. Nýlega var greint frá því að Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hefðu óvænt slitið meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn í morgun. Ástæðan er sögð vera trúnaðarbrestur, þar sem Framsóknarmenn hafi handsalað samkomulag um meirihlutaviðræður í tvær áttir. Þá hefur bæjarstjórinn verið sakaður um að leika tveimur skjöldum í viðræðum við aðra flokka en Framsóknarflokkurinn sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem ásökunum um trúnaðarbrest var vísað til föðurhúsanna. Frétt af mbl.is Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Frétt af mbl.is Valdimar hafnar ásökunum um trúnaðarbrest „Það var ekki slitið neinu“ Í samtali við mbl.is segir Valdimar vendingar dagsins hafa komið verulega á óvart. Flokkurinn hafi, eins og venjan er, átt samtöl og verið að þreifa sig áfram fyrstu dagana eftir kosningar. „Við vorum held ég búin að eiga fjóra stutta fundi með Sjálfstæðisflokknum, okkar samstarfsflokki til átta ára, og svona þreifa á mögulegu meirihlutasamtali við þá, eða þá hvort við ættum að hefja viðræður. Á mánudaginn voru þetta þrír fundir og síðasti fundurinn sem var á mánudagskvöldið var nokkuð krefjandi en kláraðist alveg. Á þeim fundi var eitt og annað sem mér fannst að þyrfti að hugsa betur um. Ég ræddi við mitt fólk á þriðjudagsmorgninum og hafði svo samband við oddvita Sjálfstæðisflokksins og sagði að ég teldi ekki að við gætum haldið áfram þessu samtali að sinni. Það var ekki slitið neinu, heldur bara sagt í raun og veru að samtalinu yrði ekki haldið áfram að sinni og að maður ætlaði að íhuga aðeins stöðuna,“ segir Valdimar. Bætir hann við að í kjölfarið hafi hafist samtal við Samfylkinguna og Viðreisn þar sem kannað var hvort grundvöllur væri fyrir mögulegum meirihlutaviðræðum. Frétt af mbl.is Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Aldrei formlegar viðræður „Það voru aldrei formlegar viðræður sem fóru þar af stað. Fundurinn var sirka 30-40 mínútur ef ég man rétt og niðurstaðan var sú að við ætluðum bara að taka þann fund og melta með okkar fólki og ræða við baklandið. Þetta er á þriðjudaginn. Síðan, seint á þriðjudagskvöldið, heyri ég aftur í oddvita Sjálfstæðisflokksins og við hreinsum ýmsa þætti er snúa að ýmsum málum. Ég tek það líka með mér á fund með bæjarfulltrúum Framsóknar og baklandinu. Niðurstaðan er svo [á miðvikudagsmorgun] að Framsókn telji best að hefja formlegar viðræður við Sjálfstæðisflokkinn og þá er sú tilkynning send út. Síðan kemur tilkynning frá Sjálfstæðisflokknum í dag um að þeir telji þessum viðræðum slitið á grunni þess að þeir telji það óheilindi og trúnaðarbrest að þessar þreifingar hafi átt sér stað, en engu að síður var ég búinn að upplýsa oddvitann símleiðis um það að ég teldi að samtalið næði ekki lengra að sinni, og það er alltaf þetta orð að sinni sem skiptir svo máli af því við vorum ekki að slíta einu né neinu heldur bara að láta vita að við teldum ekki grunn fyrir [áframhaldandi samtali].“ Bara tekist í hendur að loknum fundi Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, að hún hefði talið að flokkurinn væri að fara í meirihlutaviðræður með Framsókn og Samfylkingunni á þriðjudagskvöldinu. Það hafi verið handsalað. Aðspurður segir Valdimar að ekkert hafi þó verið handsalað annað en að flokkarnir væru að fara í þreifingar. „Það var ekkert handsalað þegar við fórum. Það var bara tekist í hendur að loknum fundi eins og menn gera. Þetta var ágætis fundur og það var sagt alveg skýrt á þeim fundi, og ég held ég hafi gert það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, að þetta væru bara þreifingar, að það væri ekki verið að ákveða neitt á þessum fundi. En niðurstaðan í lok fundarins var að það væri mikilvægt að taka þessi samtöl sem áttu sér stað og spegla það með sínu fólki,“ segir Valdimar og ítrekar að niðurstaðan hafi að lokum verið sú að Framsókn hafi viljað hefja formlega viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Frétt af mbl.is Karólína: „Þau brutu traust með þessu“ Fyrst og fremst mjög miður „Mér finnst þetta fyrst og fremst mjög miður. Mér finnst þetta bara leitt og ég er þannig gerður að ég ætla ekki að sverta einn né neinn eða tala neinn niður,“ segir Valdimar er hann er spurður um vendingar dagsins. Segist hann jafnframt bera fulla virðingu fyrir kollegum sínum og að honum finnist það leitt hvernig samtalið á þriðjudag hafi verið túlkað. Hann hafi allan tíman reynt að vera skýr á þarna væru á ferð þreifingar. Tilúinn til samtals Hvað geturðu sagt um næstu skref? Í hvaða átt hyggst Framsókn líta og hvernig ætlarðu að bregðast við stöðunni? „Við erum auðvitað bara tilbúin til samtals og samstarfs eins og áður, en vissulega er þetta orðin krefjandi staða og manni finnst auðvitað líka leitt að orðræðan sé orðin svona persónuleg og gegn sérstaklega þeim sem hér talar þegar það hefur verið bara einatt í mínum störfum og í störfum fyrir Hafnfirðinga að sýna heilindi og heiðarleika og ég taldi mig vera að því allan tímann.“ Útilokar engann Spurður hvort hann útiloki nú einhvern flokk eftir fréttir dagsins segir bæjarstjórinn: „Ég útiloka engan og hef aldrei gert. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta eru krefjandi dagar. Það vilja allir vinna vel fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Við viljum gera það áfram en það er vissulega ekki í okkar höndum. En staðan er svona og eina sem við getum gert er að koma okkar sjónarmiðum á framfæri.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Valdimar hafnar ásökunum um trúnaðarbrest Nýr meirihluti: Berglind Ósk bæjarstjóri Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Enskar stjörnur skildar eftir heima Engin ástæða til að breyta Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Frá Garðabænum í uppeldisfélagið Unglingur dæmdur fyrir samsæri um morð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi Bílasalar í sæti lögreglumanns „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Hildur boðar til fundar Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Enginn mætti frá ríkisstjórninni Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » Enskar stjörnur skildar eftir heima Engin ástæða til að breyta Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Frá Garðabænum í uppeldisfélagið Unglingur dæmdur fyrir samsæri um morð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Hildur boðar til fundar Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Enginn mætti frá ríkisstjórninni Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð

Share this article