Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hámarksrefsing við samkynhneigð hækkuð úr fimm árum í tíu

Read Full Article →

Senegalska þingið samþykkti í gær að tvöfalda lengd hámarksrefsingar fyrir sambönd samkynhneigðra úr fimm árum í tíu ár. Lögin voru samþykkt á þinginu með yfirgnæfandi meirihluta þingmanna en forseti landsins, Bassirou Diomaye Faye, á eftir að staðfesta lögin. Þá er öll réttindabarátta samkynhneigðra einnig refsiverð í landinu, með allt að þriggja til sjö ára fangelsisdómi. Fjölmiðlar hafa greint frá því að 12 samkynhneigðir menn hafi verið handteknir síðan í febrúar. Miklir fordómar og andstaða er við samkynhneigð í Senegal. Á undanförnum árum hefur mannréttindabarátta samkynhneigðra verið fordæmd í landinu því hún er álitin aðferð Vesturlandabúa til að þröngva erlendum gildum inn í menningu landsins. Meirihluti íbúa Senegal er múslímatrúar og trúarleg samtök hafa staðið fyrir mótmælum til að krefjast þyngri refsinga. 32 lönd af 54 í Afríku eru með lög sem banna samkynhneigð sambönd. Ströngustu lögin eru í Úganda, Máritaníu og Sómalíu, þar sem samkynhneigðir geta átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Þá eru um tíu ríki eða landsvæði þar sem samkynhneigðir geta átt yfir höfði sér tíu ára til lífstíðardóm fyrir samkynhneigð, þar á meðal eru lönd eins og Súdan, Kenía, Tansanía og Sierra Leone.

Share this article