Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot

Read Full Article →

Ráðherra menningarmála vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot úr tveggja ára fangelsi í sex. Lágur refsirammi endurspegli ekki alvarleika brotanna og það grafi undan kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu hér á landi. Drög að frumvarpi, þar sem er meðal annars lagt til að hækka hámarksrefsingu, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Við það myndu yfirvöld til að mynda fá víðtækari möguleika og heimildir. „Það er mikilvægast að þetta komist á dagskrá sem alvarlegt brot og alvarlegur glæpur og sé rannsakað sem slíkt,“ segir Logi Einarsson ráðherra menningarmála. Ólöglegt streymi og niðurhal er vaxandi vandamál hér á landi líkt og erlendis. „Á þetta hefur verið bent, meðal annars af framkvæmdastjóra Interpol. Þetta tengist oft víðtækari glæpastarfsemi,“ segir Logi. „Það er litið á það sem alvarlegri hlut ef þú tekur fýsískan eða efnislegan hlut og stingur honum inn á þig heldur en ef þú tekur hugréttindi.“ Meiri forgangur og auknar heimildir Í greinargerð með frumvarpsdrögunum segir að með hækkun refsirammans verði heimilt að nýta fleiri og víðtækari rannsóknarleiðir. Brotin myndu þar að auki færast til miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu. „Miðað við hvernig þetta hefur, verið þá hefur þetta fyrst og fremst ratað inn á borð einstakra umdæma sem hafa kannski ekki getað raðað þessu eins ofarlega í sína forgangsröð. Þau hafa kannski ekki yfir nægri tæknilegri þekkingu að búa og ekki jafn víðtækt samstarf við önnur lögregluyfirvöld,“ segir Logi. Sjónum er beint að þeim sem dreifa eða selja áfram hugverk annarra, ekki þeim sem kaupa þjónustu eða áskrift. Samhliða vill Logi hins vegar vekja það fólk til umhugsunar með aukinni vitundarvakningu. „Þetta beinist auðvitað ekki gegn þeim sem, í góðri trú, hafa verið að kaupa þessa þjónustu. En við viljum líka samhliða þessu auka vitundarvakningu um að þegar hluturinn er tíu sinnum ódýrari en hann er á öðrum áskriftarrásum þá er yfirleitt eitthvað bogið við það.“ Tapa 4 milljörðum á ári Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði áætlar að árlegt tekjutap rétthafa vegna ólöglegs streymis og niðurhals á sjónvarpsefni sé um fjórir milljarðar króna á ári . Um þriðjungur landsmanna streymir eða halar niður kvikmyndum eða sjónvarpsefni ólöglega samkvæmt könnun FRÍSK. Refsiramminn hefur aldrei verið fullnýttur hér á landi og aðeins hefur verið dæmd skilorðsbundin refsing fyrir höfundarréttarbrot. Logi segir að lágur refsirammi sé úr takti við það sem gerist víðast annars staðar á Norðurlöndunum. Brotin séu alvarleg og þurfi að vera framar í forgangi. „Þetta er ábending til okkar og skýr skilaboð um að þessi refsirammi og þessi litla athygli sem málin hafa fengið; það endurspegli kannski ekki alvarleikann og í hvað við erum að stefna. Því heimurinn er að breytast dálítið hratt.“

Share this article