Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hafa lagt hald á fimm bíla vegna gruns um tollalagabrot

Read Full Article →

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á fimm ökutæki undanfarið vegna gruns um tollalagabrot og skjalafals. Þetta staðfestir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, og segir að rannsókn hafi staðið í nokkrar vikur. Fluttir inn sem tjónaðir eða ætlaðir í varahluti Rannsóknin beinist að því að bílar hafi verið fluttir til landsins undir röngum formerkjum, sem tjónaðir eða ætlaðir í varahluti. Samkvæmt heimildum fréttastofu er áætlað að bílarnir hafi í einhverjum tilfellum verið teknir í sundur áður en þeir voru fluttir til landsins og því ekki tollafgreiddir á réttan hátt. Þeir hafi svo verið settir saman og þeir seldir. Eigendur ekki endilega meðvitaðir um sögu bílsins Heimildir fréttastofu herma að í einhverjum tilfellum hafi eigendur ökutækjanna komið af fjöllum þegar lögregla lagði hald á þau, enda hvorki fyrstu eigendur þeirra hér á landi, né komið nálægt því að flytja þá inn. Rannsóknin muni taka einhvern tíma Ásmundur segir að rannsókn miði vel en að hún muni þó taka tíma. Meðal annars sé verið að bíða niðurstaðna úr bíltæknirannsóknum á ökutækjunum. Enginn hefur verið handtekinn en nokkrir kallaðir í skýrslutöku. Ásmundur vildi ekki tjá sig um það hve margir hefðu stöðu sakbornings á þessum tíma.

Share this article