Viska stéttarfélag segir að olíufélögin hafi aukið álagningu sína síðustu fimm árin og hún sé nú sögulega há. Félagið áætlar að álagningin hafi verið 70 krónur á hvern bensínlítra fyrstu tvo mánuði ársins, sem sé átján krónum meira en nemur meðalálagningu til lengri tíma og er þá búið að taka tillit til verðbólgu. Þetta kemur fram í greiningu Visku sem birt var í dag. Þar segir að olíufélögin séu fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum. Það byggja þau á því að fylgni verðhækkana á heimsmarkaði við verðlagningu á dælu sé rúmlega 90 prósent en fylgi verðlækkana aðeins um 24 prósent. „Athygli vekur að fylgni verðlækkana á heimsmarkaði við bensínverð hefur farið sífellt minnkandi síðustu ár en fylgni hækkana hefur hins vegar aukist verulega,“ segir í greiningunni. Þetta sé öfugt við það sem gerðist 2014 til 2017 þegar innreið Costco á eldsneytismarkaði hafi neytt olíufélög til að skila lækkunum í verðlag.