Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíufélögin fjórfalt líklegri til að hækka en að lækka

Read Full Article →

Íslensku olíufélögin eru nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum samkvæmt greiningu Visku. Þar segir að eldsneytisverð gæti verið um 20 krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu að langtímameðaltalinu. Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Visku, birtir greininguna í tengslum við þá eldsneytisálagningu sem hefur átt sér stað í kjölfar Íransstríðsins. Þar er þó farið yfir heildarþróun eldsneytisverðs frá árinu 1998. „Álagning á hvern bensínlítra hefur aukist verulega síðustu 5 ár og var hún sögulega há á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Var álagning á hvern bensínlítra þá rúmlega 70 krónur að meðaltali samkvæmt áætlun Visku sem er um 18 krónum yfir langtímameðaltali álagningar, á verðlagi ársins 2026.“ Sjá einnig „Fjárfestar líklegast ofmetið áhrifin af hækkun olíuverðs“ Hann segir að eldsneytisverð hefði líklega verið um 20 krónum lægra ef álagning hefði verið við langtímameðaltal undanfarið að teknu tilliti til virðisaukaskatts. „Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn.“ Vilhjálmur bætir við að Íransstríðið hafi leitt til 40% hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og að olíufélögin hafi nú þegar velt hluta þeirrar hækkunar í verðlagið. Skili þau svo allri hækkuninni í verðlagi myndi það líklega leiða til verðbólguþrýstings upp á 0,7%. Þegar kemur að verðhækkunum á heimsmarkaðsverði mældust verðhækkanir á dælu rúmlega 90% milli 2022-2025 en fylgni verðlækkana var aðeins um 24%. „Athygli vekur að fylgni verðlækkana á heimsmarkaði við bensínverð hefur farið sífellt minnkandi síðustu ár en fylgni hækkana hefur hins vegar aukist verulega. Á árunum 2014-2017 var þessu hins vegar öfugt farið en líklegt er að innreið Costco á eldsneytismarkað hafi þar haft sitt að segja og olíufélögin hafi neyðst að skila lækkunum í verðlagið.“

Share this article