Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ófærð, slæm færð og óvissustig á vegum

Read Full Article →

Hríðarveður setur sitt mark á umferð allt frá Vestfjörðum til Austfjarða. Þungfært er orðið í Ísafjarðardjúpi og snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Vestfjörðum þar sem akstursskilyrði gætu versnað þegar líður á daginn. Ófært er á nokkrum vegum: í Almenningum, á Hófaskarði og milli Mánár og Lóns, sem og á Vatnsskarði, Öxi og Breiðdalsheiði. Þungfært er í Fljótum og þæfingsfærð í Siglufirði, Ólafsfirði og Víkurskarði. Sömuleiðis er þæfingsfærð á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði, milli Húsavíkur og Mánár og í Þistilfirði. Óvissustig er á Fróðárheiði vegna veðurs og gæti vegurinn lokast með skömmum fyrirvara. Þá er óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð, Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi. Búast má við umferðartöfum á Holtavörðuheiði vegna trukks sem er fastur. Annar trukkur þverar veg í Langadal. Vegurinn lokaðist en unnið var að því að opna hann upp úr klukkan átta. Holur hafa myndast á vegum víða á Vesturlandi og Vestfjörðum. Þar er fólk hvatt til að fara varlega og ásþungi hefur verið takmarkaður. Sömuleiðis er varað við holum í vegum víða á Austurlandi. Einnig má búast við hreindýrum á flakki frá Almannaskarðsgöngum að Djúpavogi og er fólki því ráðlegt að aka varlega á þeim slóðum.

Share this article