Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ófærð og lokanir vegna hríðar og snjóflóðahættu

Read Full Article →

Samgöngur hafa farið nokkuð úr skorðum á norðanverðu landinu þar sem er ýmist stormur og hríðarveður eða snjókoma og skafrenningur. Enn er ófært yfir Dynjandisheiði á Vestfjörðum þar sem snjóflóð féllu fyrir sólarhring og hefur vegurinn verið lokaður síðan. Flateyrarvegur og vegurinn um Súðavíkurhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og ófært er á Þröskuldum, Gemlufallsheiði og víðar. Víða er þæfingur eða snjóþekja. Mokstur er hafinn víða á Vestfjörðum. Á Norðurlandi eru vegirnir um Ólafsfjarðarmúla og Víkurskarð lokaðir, ófært er á Almenningum og á Siglufjarðarvegi.

Share this article