Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum frá miðnætti í kvöld samkvæmt tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands . Þá verða nokkur atvinnuhúsnæði rýmd á Ísafirði í fyrramálið. Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað vegna snjóflóðahættu á vegum. Nokkur minni snjóflóð hafa fallið, m.a. á vegi, en ekkert mjög stórt. Mikill nýr snjór er á svæðinu eftir norðan- og norðvestan veður. Aðfaranótt sunnudags hvessir af norðaustri og snjóar. Við það getur orðið töluverður skafrenningur og hröð snjósöfnun á upptakasvæði snjóflóða.