- What: Major earthquake near Torfajökull
- Impact: No direct impact on IT systems
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Stærsti skjálfti aldarinnar við Torfajökul Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálfi, 3,7 að stærð, varð við Torfajökul, vestur af Landmannalaugum, þegar klukkuna vantaði tólf mínútur í tólf. Frá 2000 hafa fimmtán skjálftar sem voru þrír eða stærri mælst á þessum slóðum. Sá stærsti þeirra, þar til í dag, varð árið 2018. Hann var 3,7 að stærð eins og skjálftinn í dag. Upptök skjálftans voru á 1,3 kílómetra dýpi, sem er frekar grunnt. Torfajökull. Aðsent / Landhelgisgæslan Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Gæti skapast heimild til að segja upp kjarasamningum í ágúst Aðalhagfræðingur Landsbankans segir að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti verið í uppnámi vegna verðbólgu. Auknar líkur séu á að forsendur samninganna haldi ekki vegna verðbólgu. Fyrir 39 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Snjóflóð í Súðavíkurhlíð og við Flateyri Fjöldi snjóflóða hefur fallið í Súðavíkurhlíð í dag og veginum hefur verið lokað. Þá féllu tvö snjóflóð fyrir ofan Flateyri. Flateyrarvegur er á óvissustigi. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Óljós stríðsmarkmið valda mikilli óvissu Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran í Heimsglugganum. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það leiði til umtalsverðrar verðbólgu um allan heim. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Jónas Már og Eydís Inga efst hjá Samfylkingunni Samfylkingin í Kópavogi hefur samþykkt framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá aukinni verðbólgu og hærri stýrivöxtum Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga aukist milli mánaða og verði 5,4 prósent í mars. Líkt og Greiningardeild Íslandsbanka spáir hún því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig í næstu viku. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Menning Safnar brotnu leirtaui og sögum fólks af brostnum draumum Steinunn Knúts Önnudóttir stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna. Hún safnar bæði brotnu leirtaui og sögum fólks og færir í nýtt samhengi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Rétta yfir manni sem braut gegn stjúpdóttur eftir að hafa nauðgað móðurinni Aðalmeðferð er hafin yfir karlmanni sem er ákærður fyrir sérlega gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Hann hlaut áður fimm ára dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður hennar. Sá dómur var skilorðsbundinn því móðirin baðst vægðar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Óvissa um framhald sjónvarpsfrétta Sýnar eftir fyrirhugaða sölu Starfsemi á fjölmiðlum Sýnar verður óbreytt meðan verið er að semja um sölu útvarps- og netmiðla til Símans. Salan gæti tekið tólf mánuði. Ekki fengust skýr svör á starfsmannafundi um sjónvarpsfréttir Sýnar eftir sölu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eistland Skógarbjörn að leik eftir vetrardvala Einstakt myndskeið náðist af skógarbirni sem var nývaknaður úr vetrardvala í Eistlandi í vikunni. Björninn lék á als oddi og virtist úthvíldur eftir vetrardvalann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Síminn vinnur að kaupum á Vísi, Bylgjunni og fleiri miðlum Síminn og Sýn hafa undirritað skilmálaskjal um að Síminn kaupi útvarps- og vefmiðla Sýnar. Kaupverðið er rúmir fimm milljarðar króna. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Ísland tekur þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael Íslensk stjórnvöld taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Farið er fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gasa. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Macron og Zelensky ræða aukinn þrýsting á Rússa Forsetar Frakklands og Úkraínu ræðast við í París á morgun um leiðir til þess að binda enda á innrásarstríð Rússa í Úkraínu og aukinn þrýsting á Rússa. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ófærð, slæm færð og óvissustig á vegum Norðanhríð veldur ófærð á nokkrum vegum og aðrir eru á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Segja álagningu olíufélaganna vera sögulega háa Stéttarfélagið Viska segir að eldsneytisverð gæti verið 20 krónum lægra en það er ef olíufélögin hefðu ekki aukið álagningu sína á síðustu árum. Þau séu fjórfalt líklegri til að skila hækkunum á alþjóðamörkuðum út í verðlag en lækkunum. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Of lítið unnið með niðurstöðurnar Auka þarf samræður í skólastofunni, bæta úrval lesefnis fyrir börn og ungmenni og gera meiri kröfur til nemenda. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta þætti Kerfisins á Rás 1. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur 92% fangelsisplássa nýtt Brynja Dögg Friðriksdóttir Ringerike fangelsið í Tyristrand í Noregi. EPA / OLE BERG-RUSTEN 3.075 einstaklingar eru í fangelsum í Noregi í lok febrúar samkvæmt tölum frá Fangelsismálastofnun Noregs, sem norska ríkisútvarpið NRK birti í morgun. 92% fangelsisplássa í Noregi eru í notkun. Alls eru 742 einstaklingar í gæsluvarðhaldi eða 24%. 875 fangar eru erlendis ríkisborgarar, eða 28% þeirra sem afplána dóma. Konur eru 5,3% fanga, og ólögráða einstaklingar undir 18 ára aldri eru níu talsins. Þá afplána rúmlega fimm hundruð einstaklingar dóma í samfélaginu með rafrænu eftirliti eða samfélagsþjónustu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Svía bannað að snúa aftur til Íslands vegna íkveikju í bíl lögreglukonu Maður sem er grunaður um að kveikja í bíl lögreglukonu sætir tíu ára endurkomubanni. Hann er grunaður um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi. Einu skráðu tekjur mannsins voru félagsleg aðstoð frá Reykjavíkurborg. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael hótar innrás í Líbanon — milljónir á vergangi Í dag er þrettándi dagur átaka sem Bandaríkin og Ísrael hófu með árásum Íran. Allt að 3,2 milljónir hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín í Íran og um 800 þúsund í Líbanon. Árásir Ísraelshers á Líbanon stigmagnast og varnarmálaráðherra Ísraels hótar innrás. Íran og Hezbollah-samtökin í Líbanon gera samstilltar árásir á Ísrael. Olíuverð fór aftur í 100 dollara, írönsk stjórnvöld segja heiminum að búa sig undir að það fari í 200 dollara á tunnu. BBC greinir frá því að alls sé búið að ráðast á 13 skip á Arabíuflóa, við Hormússund og Ómanflóa frá 28. febrúar. FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ert þú ísmaðurinn“? Ítalskur gelato ís er nokkuð nýtt fyrirbæri á Íslandi. Diego Ragnar sér Vestfirðingum fyrir þessu silkimjúka lostæti. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Norðanhríð til morguns Veðurstofan varar við norðanhríð frá Breiðafirði um Vestfirði og inn á Norðurland vestra sem veldur versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. Hvöss norðvestanátt verður um mestallt landið. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Harðari afstaða og strangari reglur um flóttafólk í Evrópu í kjölfar flóttamannabylgjunnar fyrir tíu árum Þegar bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum Evrópuríkja um miðjan síðasta áratug voru stjórnvöld óviðbúin, en mörg hver vinsamsleg. Nú hefur dregið úr samúð almennings, og stefna ríkjanna - og Evrópusambandsins -hefur breyst eftir því. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Blak Í dag: Ballið byrjar í blakinu Undanúrslit bikarkeppni kvenna í blaki verða leikin í dag. Ríkjandi bikarmeistarar KA mæta til leiks í Digranesi. Báðir leikirnir eru sýndir beint á RÚV 2. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Viðskiptaráð telur að bæta megi heilsugæslu með aukinni samkeppni Í úttekt á heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu leggur Viðskiptaráð meðal annars til að rekstrarskilyrði á milli einkarekinna og opinberra starfsstöðva verði jöfnuð og að samkeppni verði aukin til þess að hægt sé að stytta biðtíma og bæta þjónustu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Síle Róttækur hægrimaður nýr forseti landsins Nýr forseti Síle, Jose Antonio Kast, sór embættiseið í höfuðborginni Santiago í gær. Kast er róttækur hægrimaður og talinn vera íhaldssamasti forseti Síle síðustu þrjátíu ár. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 43 særðust í árásum í Zaporizhzhia og Shostka Að minnsta kosti 13 særðust, þar af tvö börn, í loftsprengjuárás Rússa á borgina Zaporizhzhia i Úkraínu í nótt. Þá særðust 40 lögreglumenn í drónaárás í norðausturhluta Sumy-héraðs í gær. 12. mars 2026 kl. 2:22ERLENDAR FRÉTTIR Senegal Hámarksrefsing við samkynhneigð hækkuð úr fimm árum í tíu Senegalska þingið samþykkti í gær að tvöfalda lengd hámarksrefsingar fyrir sambönd samkynhneigðra úr fimm árum í tíu ár. Miklir fordómar og andstaða er við samkynhneigð í landinu. 12. mars 2026 kl. 1:06ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Samninganefnir Rússa og Bandaríkjamanna funduðu á Flórída Brynja Dögg Friðriksdóttir Kirill Dmitriev og Steve Witkoff. EPA / KRISTINA KORMILITSINA / SPUTNIK / KREMLIN POOL Kirill Dmitriev, einn helsti ráðgjafi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, fundaði með bandarískri samninganefnd í Flórída í Bandaríkjunum í gær. Sérlegur erindreki Bandaríkjanna, Steve Witkoff, sagði í færslu á samskiptamiðlinum X að þeir hefðu rætt fjölbreytt málefni og ákveðið að vera í sambandi. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan átökin brutust út í Mið-Austurlöndum. Bandaríkin afléttu að hluta til viðskiptabanni á sölu Rússa á olíu til að koma í veg fyrir of mikla hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Viðskiptabannið á olíusölu Rússa var sett á vegna innrásar Rússa í Úkraínu 2022. 12. mars 2026 kl. 0:08ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Þrír menn ákærðir fyrir stórfellt brot á þjóðminjalögum Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir brot á sænskum þjóðminjalögum. Mennirnir fundu sérstæðan silfursjóð frá víkindaöld sem þeir reyndu að selja en samkvæmt sænskum lögum verður að afhenda ríkinu allar þær fornminjar sem finnast tafarlaust. 11. mars 2026 kl. 22:01INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Listi Samfylking