- What: Earthquakes detected in deep areas
- Impact: Minor seismic activity reported
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálftar á djúpa svæðinu Þórdís Arnljótsdóttir Nokkur smáskjálftavirkni var í morgun suðaustur af Bárðarbungu og skipta skjálftarnir tugum. Á Veðurstofunni eru þessar slóðir stundum kallaðar djúpa svæðið því að skjálftar mælast iðulega þar á fimmtán til tuttugu kílómetra dýpi eins og í morgun. Hrinur verða oft þarna eftir skjálfta í Bárðarbunguöskjunni. Það gerðist líka í morgun því klukkan sjö varð skjálfti af stærðinni 2,7 í Bárðarbungu. Bárðarbunga á Vatnajökli. RÚV / Einar Rafnsson Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Mjög stórt snjóflóð féll yfir Siglufjarðarveg og út í sjó Siglufjarðarvegi hefur verið lokað vegna snjóflóðs úr Selskál skammt utan við bæinn. Mikið hefur snjóað á Tröllaskaga undanfarna daga og veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Skiptinemar á gistiheimilum á meðan bygging nýrra stúdentagarða tefst Nemendur við Háskólann á Akureyri geta ekki flutt inn í nýjar stúdentaíbúðir á árinu, eins og til stóð. Yfir 80 hafa verið á biðlista síðustu misseri og skiptinemar hafa dvalið á gistiheimilum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Bolungarvíkurkaupstaður Sveitarfélagið tekur við rekstri vegarins um Bolafjall af utanríkisráðuneytinu Ábyrgð á rekstri vegarins um Bolafjall hefur verið flutt frá utanríkisráðuneytinu til Bolungarvíkurkaupstaðar. Umferð um veginn hefur stóraukist með tilkomu útsýnispalls. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Víða vond skilyrði til aksturs á morgun Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því að erfið akstursskilyrði og blint verði í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, sérstaklega á fjallvegum, svo sem Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi. Útlit er fyrir áframhaldandi hríð á þessum slóðum á mánudag. Einnig má búast við því að hvöss austanátt og blint verði í snjókomu og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum frá miðnætti í kvöld og til hádegis á morgun. Þá er varað við snörpum vindhviðum, um 35 m/s, við Hafnarfjall og á Kjalarnesi frá klukkan þrjú í nótt til klukkan sjö í fyrramálið, og á Snæfellsnesi síðdegis á morgun. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hryllingurinn í Kherson – Elta fólk uppi með sprengjudrónum Rússlandsher beitir drónum með sprengiefni og myndavélum til að elta fólk uppi á götum úti. Í Kherson og víðar hefur net verið strengt yfir vegi til að verjast þessu. Fjallað er um málið í Heimskviðum. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það þurfti aldrei að hjálpa mér með neitt“ Geðhjúkrunarfræðingnum Ragnheiði lá alltaf á að verða fullorðin og átján ára var hún flutt inn með kærasta sínum sem átti við alvarlegan geðvanda að stríða. Álagið var mikið en hún lét ekkert stöðva sig. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Ferðalangar kynni sér ástand vega Ferðalangar á Norðurlandi eru hvattir til að kynna sér ástand vega áður en lagt er í hann. Þurrt er í öðrum landshlutum. Áhrifa næstu lægðar fer að gæta í nótt og þá verður gul viðvörun á landinu norðvestanverðu. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Tónræktin á Akureyri: „Ég er að reyna að búa til tónlistarskólann sem ég fór aldrei í“ Tónræktin, tónlistarskóli á Akureyri, hefur það að markmiði að gefa sem flestum, óháð aldri og getu, kost á fjölbreyttu og skemmtilegu tónlistarnámi. Kastljós heimsótti skólann. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Kórea 10 skotflaugum skotið frá Norður-Kóreu Norður-Kórea skaut um 10 skotflaugum af óþekktri gerð í átt að Japanshafi í morgun að íslenskum tíma. Heræfing Suður-Kóreu og Bandaríkjanna hófst á mánudaginn. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa lýst þessum heræfingum sem æfingum fyrir innrás. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Blak Í dag: Bikarmeistarar í blaki krýndir Úrslitaleikir Kjörísbikars kvenna og karla í eru í dag. HK og KA mætast hjá konunum klukkan 13:00 og hjá körlunum eigast Afturelding og Hamar við í leik sem hefst 15:30. Leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Vilja meina rússneskum hermönnum að fá vegabréfsáritanir Átta evrópskir þjóðarleiðtogar vilja að Evrópusambandið hætti að gefa út vegabréfsáritun til Rússa sem hafa barist með rússneska hernum í Úkraínu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Palestínskur leikari fær ekki að mæta á Óskarinn Palestínskur leikari fær ekki að mæta á Óskarsverðlaunahátíðina sem haldin verður í Los Angeles á sunnudagskvöld vegna ferðabanns í Bandaríkjunum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Rodriguez vill að Bandaríkin afnemi refsiaðgerðir gegn landinu Forseti Venesúela hefur beðið Bandaríkjaforseta að afnema refsiaðgerðir gegn landinu. Bandarísk stjórnvöld hafa heimilað innflutning á áburði frá Venesúela. Verð á áburði hefur hækkað mikið síðan átök brutust í Mið-Austurlöndum. 14. mars 2026 kl. 1:47ERLENDAR FRÉTTIR Sameinuðu arabísku furstadæmin 45 einstaklingar handteknir fyrir að dreifa upplýsingum um árásir á samfélagsmiðlum Brynja Dögg Friðriksdóttir Maður myndar máva í Abu Dhabi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AP Lögregluyfirvöld í Abu Dhabi, höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna, hafa handtekið 45 einstaklinga fyrir að dreifa upplýsingaóreiðu og deila staðsetningu og myndefni á samfélagsmiðlum sem sýna árásir Írana á borgina. Meðal hinna handteknu eru erlendir ríkisborgarar. Rannsóknardeild lögreglunnar segir að sakborningar séu einnig sakaðir um að deila ónákvæmum og misvísandi upplýsingum sem yfirvöld segja að geti haft áhrif á almenningsálit og dreift ósannindum í samfélaginu. 14. mars 2026 kl. 0:49ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríski herinn gerir miklar árásir á Kharg-eyju Bandaríkjaforseti greindi frá árásunum og sagði þær hafa beinst að hernaðarmannvirkjum á Kharg-eyju en olíuinnviðum hafi verið hlíft. Um 90% af hráolíuútflutningi Írans fer um eyjuna. 13. mars 2026 kl. 22:46ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tólf heilbrigðisstarfsmenn drepnir í árásum Ísraela á Líbanon Í hið minnsta tólf heilbrigðisstarfsmenn eru látnir eftir árás Ísraelshers á heilsugæslustöð í suðurhluta Líbanon. Líbanska heilbrigðisráðuneytið greindi frá árásunum í kvöld. 13. mars 2026 kl. 21:55ÍÞRÓTTIR Blak Hamar fær tækifæri á að vinna fimmta bikarmeistaratitilinn Hamarsmenn munu leika til úrslita í Kjörísbikar karla í blaki á morgun. Þeir höfðu betur gegn Þrótti Fjarðabyggð, 3-1, í spennandi leik. Hamar mætir Aftureldingu í úrslitaleiknum. 13. mars 2026 kl. 21:33ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík með endurkomusigur og er deildarmeistari Grindavík er deildarmeistari karla í körfubolta þótt keppninni sé enn ekki lokið. Liðið hefur nú sex stiga forskot á toppnum og ljóst að ekkert lið getur toppað Grindavík að stigum. Liðið tryggði titilinn með sigri á Stjörnunni í kvöld. 13. mars 2026 kl. 21:24ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher eykur herafla: 2500 landgönguliðar á leið til Mið-Austurlanda Ásrún Aldís Hreinsdóttir US NAVY / EPA-EFE Bandaríkin auka við herafla sinn í Mið-Austurlöndum, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum eru nú um 2500 landgönguliðar á leið í þremur herskipum til átakasvæðisins. Samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar kom beiðnin um liðsauka frá yfirstjórn Bandaríkjahers á átakasvæðinu. Beiðnin hafi síðar verið samþykkt af Pete Hegseth, yfirmanni Pentagon. Styrjöldin í Mið-Austurlöndum hefur kostað vel á þriðja þúsund mannslíf. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við Fox-fréttastöðina í dag að styrjöldinni í Mið-Austurlöndum ljúki þegar honum þyki hæfa. 13. mars 2026 kl. 20:34INNLENDAR FRÉTTIR Fimleikar Danskt fimleikafólk á heimsmælikvarða á landinu Fimleikahópur á vegum danska fimleikasambandsins heldur sýningu í Ásgarði í Garðabæ í kvöld. Markmið hópsins er að fá sem flesta til að hreyfa sig. 13. mars 2026 kl. 19:43INNLENDAR FRÉTTIR Veður Sóttu fólk á heiðina í fyrstu alvöru norðanhríðinni í vetur Á þriðja tug var bjargað úr föstum bílum á Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Heiðin var opnuð á hádegi en lokað aftur um tíma vegna áreksturs. Björgunarsveitarmaður á Hvammstanga segir þetta fyrstu alvöru norðanhríð vetrarins. 13. mars 2026 kl. 19:07ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Stríðið í Mið-Austurlöndum gott fyrir Rússa og slæmt fyrir Úkraínu Rússar hafa aukið olíuframleiðslu sína vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum og selt olíu fyrir 73 milljarða króna á dag síðan það hófst. Þeir peningar nýtast svo í stríðinu gegn Úkraínu. 13. mars 2026 kl. 19:01ÍÞRÓTTIR Blak Afturelding þurfti oddahrinu gegn Völsungi/Eflingu Ljóst er að Afturelding verður í úrslitaleik Kjörísbikars karla í blaki en liðið hafði betur gegn Völsungi/Eflingu 3-2. Afturelding hefur einu sinni orðið bikarmeistari, fyrir níu árum. 13. mars 2026 kl. 18:58INNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Kjartan Kjartansson hlaut Blaðamannaverðlaun ársins Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent í fjórum flokkum í dag. Viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, umfjallanir um loftslagsmál, umfangsmiklar njósnaaðgerðir og e.coli-matarsýkingu fengu verðlaunin í ár. 13. mars 2026 kl. 18:42INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál „Hlýtur að vera hægt að gera betur í samningunum við landeigendur“ Ráðherra vill flýta uppbyggingu raforkuinnviða með lagabreytingum sem heimila framkvæmdir áður en samningar nást við landeigendur. Landeigendur segja áformin bæði harkaleg og vanhugsuð. 13. mars 2026 kl. 18:30ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Fjölmennt herlið við æfingar í Noregi og Finnlandi Á fjórða tug þúsunda hermanna frá 14 ríkjum Atlantshafsbandalagsins taka þátt í heræfingu norðanvert í Noregi og í Finnlandi. Þeim er ætlað að þjálfa bardagagetu í erfiðum aðstæðum norðurslóða á landi, lofti og legi. Rússar fylgjast grannt með. 13. mars 2026 kl. 18:27INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Átta ára fangelsi fyrir alvarleg brot gegn eiginkonu sinni og ungu barni Héraðsdómur Reyk