- What: Magma accumulation is occurring under Svartsengi, Iceland, approaching levels seen before previous eruptions.
- Impact: A magma flow from Svartsengi to the Sundhnúksgígaröð could lead to another volcanic eruption in the coming weeks.
Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast nú eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljónir rúmmetra af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Samkvæmt vef Veðurstofunnar er kvikusöfnun hæg en stöðug. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegast að næstu vikurnar hlaupi kvika frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Veðurstofan segir að ef komi til eldgoss sé líklegt að það verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa hingað til orðið á Sundhnúksgígaröðinni. Hættumat er óbreytt og gildir til 3. mars.