Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leggjast gegn fækkun akreina fyrir bílaumferð

Read Full Article →

Félag atvinnurekenda leggur til breytingar á tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar sem nú er til umsagnar í Skipulagsgátt. Félagið leggst eindregið gegn fækkun akreina fyrir bílaumferð á götunni um leið og akreinum fyrir Borgarlínu verður komið fyrir. Á vef FA er Reykjavíkurborg hvött til að leita leiða til að fækka bílastæðum við götuna minna en tillagan gerir ráð fyrir eða þá bæta upp fyrir fækkun stæða með bílastæðahúsi við nýja Þjóðarhöll í Laugardal. Þá leggur félagið mikla áherslu á gott skipulag framkvæmda og samráð við atvinnurekendur, þannig að t.d. klúðrið vegna framkvæmda við Hverfisgötu verði ekki endurtekið. FA, sem gætir hagsmuna fjölda fyrirtækja við Suðurlandsbraut og í Múlahverfi, segir að um sé að ræða eitt helsta verslunar- og þjónustusvæði Reykjavíkur. Þar starfi vel á annað þúsund fyrirtæki með minnst 5.500 starfsmenn og yfir 400 milljarða króna veltu. Sjá einnig Mótmæla Borgarlínu við Suðurlandsbraut Félagið og félagsmenn segjast styðja eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, þar með talin áform um Borgarlínu, en bætir við að borgaryfirvöld verði að vera tilbúin að hlusta á áhyggjur, ábendingar og tillögur atvinnurekenda í borginni ef samgönguáform eiga að ganga eftir og njóta stuðnings. „Varðandi fyrirhugaða fækkun bílastæða, bendir FA á þá augljósu hættu að bifreiðum viðskiptavina fyrirtækja við Suðurlandsbraut verði frekar lagt uppi í Múlahverfi, með tilheyrandi álagi á stæði þar. FA bendir jafnframt á að fallið hafi verið frá áformum um bílastæðahús við nýja Þjóðarhöll, en með slíku húsi mætti mæta fækkun stæða við Suðurlandsbraut.“

Share this article