Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóflóð á veginn um Súðavíkurhlíð og við Flateyri

Read Full Article →

Fjöldi snjóflóða hefur fallið á veginn um Súðavíkurhlíð í dag. Hættustig er á veginum og honum var lokað á tólfta tímanum. Vegagerðin og Björgunarsveitin Kofri aðstoðuðu fólk í vanda. Ekki er gert ráð fyrir að vegurinn verði opnaður í dag. Lögreglan á Vesturlandi bendir þeim sem verða innlyksa í Súðavík að hafa samband við 112 og fá samband við lögreglu á Ísafirði. Tvö snjóflóð féllu fyrir ofan Flateyri Viðvörun er á Flateyrarvegi vegna snjóflóðahættu og búast má við að veginum verði lokað þegar líður á daginn. Tvö snjóflóð hafa fallið fyrir ofan Flateyri, eitt frekar stórt féll í Innra-Bæjargili og minna flóð í Skollahvilft fyrir ofan varnir bæjarins. Byggð er ekki í hættu. Varðskipið Þór verður til taks á Ísafirði. Til stóð að skipið færi til Hólmavíkur í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar en því hefur verið frestað vegna veðurs.

Share this article