Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Þrjú snjóflóð fallið fyrir ofan Flateyri

  • What: Snowmelt caused floods in Flateyri
  • Impact: Road closures and safety warnings issued
Read Full Article →

Þrjú snjóflóð hafa fallið fyrir ofan Flateyri í dag. Tvö snjóflóðanna féllu niður að snjóflóðavörnum en ógnuðu ekki byggð að sögn Heiðar Þórisdóttur, sérfræðings á snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands. Lítið flóð féll á veginn um Spilli í Súgandafirði en ógnaði ekki byggð. Fjöldi snjóflóða hefur fallið á veginn um Súðavíkurhlíð í dag og honum var lokað á tólfta tímanum. Ekki er gert ráð fyrir að vegurinn opni í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Braga Þór Thoroddsen, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps, komst einn gestur í þorpinu ekki leiðar sinnar. Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Flateyrarvegi. Veginum verður lokað klukkan átta í kvöld. Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals, er opinn en ef veðurspá gengur eftir má búast við að honum geti verið lokað þegar líður á daginn. Lögreglan á Vestfjörðum segir snjósöfnun hafa aukist ofan vegarins og eðlilegt að fólk sé ekki á ferð þar að ástæðulausu. Heiður segir áfram fylgst vel með aðstæðum en ekki þurfi að hafa áhyggjur af snjóflóðum í byggð eins og er. Veðrið verður líklega verst í kvöld og nótt en tekur svo að lagast.

Share this article