Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna

  • What: Snow avalanche reported in mountain area
  • Impact: Travelers advised to be cautious
Read Full Article →

Snjóflóð sem féll í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði í dag hafnaði nærri á hópi vélsleðamanna sem þar voru. Einn úr hópnum lenti í flóðinu en komst fljótlega undan því og slapp ómeiddur frá. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um snjóflóðið klukkan 15:31 í dag. Þá var viðbúnaðarstig fyrir snjóflóð virkjað á Tröllaskaga ásamt aðgerðastjórn á Akureyri. Stuttu síðar kom í ljós að engin slys höfðu orðið á fólki og varð viðbragð þá afturkallað. „Við hvetjum alla sem hyggja á fjallaferðir á þessu svæði til að gæta vel að sér þar sem mikið hefur snjóað síðasta sólarhring og snjóalög eru því óstöðug,“ segir í tilkynningu lögreglu sem þakkar jafnframt fyrir snögg og fumlaus viðbrögð allra þeirra sem brugðust við þegar útkallið varð fyrr í dag.

Share this article