Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sendir borginni bréf vegna ábendinga frá foreldrum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.3.2026 | 14:26 Sendir borginni bréf vegna ábendinga frá foreldrum Tekið er fram í bréfi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna, að ekki sé tekin afstaða til staðsetningarinnar. Samsett mynd/Kristinn/Eggert Setja bókamerki Umboðsmaður barna hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem áréttað er að áður en ákvarðanir eru teknar á vettvangi borgarinnar, meðal annars varðandi skipulagsmál, beri að leggja sérstakt mat á áhrif þeirra á börn. Ætti slíkt mat ávallt að fara fram á fyrstu stigum umræðu og ákvarðanatöku. Er bréfið sent vegna ábendinga frá foreldrum um áhyggjur þeirra af fyrirhugaðri staðsetningu kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46, í návígi við grunnskóla og íþrótta- og tómstundastarf barna. Frétt af mbl.is Lýsa áhyggjum af öryggi barna Halda fram að afbrot aukist Í bréfi Salvarar Nordal umboðsmanns segir að mat á áhrifum á börn sé liður í að kanna hvort ákvörðunin samræmist Barnasáttmálanum, þar sem kveðið sé á um að það sem börnum sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar gerðar séu ráðstafanir er varða börn. „Leiði mat á áhrifum í ljós að um neikvæð áhrif á börn er að ræða, ber stjórnvöldum skylda til þess að leita allra leiða til þess að fyrirbyggja slík áhrif, og grípa til mótvægisaðgerða í þeim tilvikum þar sem það er ekki unnt. Þannig er tryggt að ákvörðun hverju sinni samræmist 3. gr. Barnasáttmálans.“ Fyrirhuguð staðsetning kaffistofunnar hefur vakið upp sterk viðbrögð margra íbúa í hverfinu, sem hafa mótmælt opnuninni. Í febrúar var til að mynda haldinn hitafundur í Réttarholtsskóla þar sem íbúar í Gerðum, við Grensásveg og í nærliggjandi hverfum héldu samstöðufund gegn því að kaffistofan verði opnuð á þessum stað. Var því meðal annars haldið fram að afbrot myndu aukast í kringum starfsemina. Frétt af mbl.is „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Mæður hafa mótmælt Alls bárust 39 umsagnir í skipulagsgátt um fyrirhugaðan flutning kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Flestar umsagnanna voru neikvæðar í garð þessara breytinga og lýstu margir yfir áhyggjum af öryggi barna. Þá hafa mæður í hverfinu komið í saman og mótmælt fyrirætlununum. „Mér finnst eins og það megi ekki minnast á að það sé áhætta fyrir börn og aðra að búa í návígi við svæði þar sem virkir fíklar eru daglega,“ sagði ein þeirra, Emma Ævarsdóttir, í samtali við Morgunblaðið í byrjun mars. Tekið er fram í bréfi umboðsmanns að með því sé ekki verið að taka afstöðu til þess hvort fyrirhuguð staðsetning kaffistofu Samhjálpar sé heppileg. Heldur sé tilgangurinn að vekja athygli borgaryfirvalda á þeirri skyldu, sem á þeim hvílir, samkvæmt ákvæðum Barnasáttmálans. Frétt af mbl.is Mikill hiti í fólki: „Afbrot munu aukast“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mojtaba Khamenei sendir frá sér yfirlýsingu Maður verður að borga af lánunum sínum Myndskeið: Hætti við eftir tvo daga á Íslandi Af hverju var dómurinn ómerktur? Sentences for Björgvinsson and the Shamsudin brothers increased Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Vara við árásum á hafnir við Hormússund Af hverju var dómurinn ómerktur? Spá hækkun vaxta og verðbólgu Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ákærður fyrir fjölda brota gegn unglingsstúlku Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Mojtaba Khamenei sendir frá sér yfirlýsingu Maður verður að borga af lánunum sínum Myndskeið: Hætti við eftir tvo daga á Íslandi Af hverju var dómurinn ómerktur? Sentences for Björgvinsson and the Shamsudin brothers increased Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá hækkun vaxta og verðbólgu Borga ekki umferðarsektir Ferðamenn lentu á kafi í vatni Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ákærður fyrir fjölda brota gegn unglingsstúlku Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article