Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Réttur barna til menntunar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 7:00 Réttur barna til menntunar Salvör Nordal mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Embætti umboðsmanns barna hefur á síðustu árum fengið fjölmörg erindi vegna barna sem njóta ekki réttinda sinna til menntunar með fullnægjandi hætti. Mismunandi ástæður liggja þar að baki. Dæmi eru um að börn fái ekki skólavist við hæfi, þau séu með skerta stundatöflu og í einhverjum tilvikum hefur þeim verið vísað úr skóla. Þessi börn eiga það flest sameiginlegt að hafa upplifað mikla höfnun vegna þessa, oft nánast frá upphafi skólagöngunnar. Eðli máls samkvæmt finna þau mörg til vanlíðunar og vanmáttar gagnvart skólakerfinu þar sem umhverfið styður ekki við þarfir þeirra. Af þeim erindum sem borist hafa embættinu má sjá að mörg þessara barna eru með taugaþroskaraskanir eins og ADHD eða einhverfu og hafa þurft að bíða árum saman eftir greiningum og viðeigandi stuðningi. Skólasókn Embætti umboðsmanns barna hefur margoft vakið athygli á stöðu þeirra barna sem glíma við það sem kallað hefur verið skólaforðun eða skólasóknarvandi. Erfitt er að átta sig á umfangi vandans þar sem hvergi er skipulega safnað upplýsingum um þennan hóp. Árið 2019 sendi embættið menntamálaráðuneytinu tillögur, að beiðni ráðuneytisins, þar sem meðal annars var lögð áhersla á mikilvægi þess að kortleggja vandann, samræma fjarvistarskráningu í öllum grunnskólum, samræma verkferla, tryggja stuðning við börn og leita eftir sjónarmiðum þeirra. Nú sjö árum síðar virðist lítið hafa áunnist; ekki er ljóst hversu mörg börn á landinu glíma við skólaforðun og mynda ekki jákvæð tengsl við skólann, einkum vegna þess að það skortir viðeigandi úrræði og stuðning fyrir þennan hóp barna. Kerfisbundin aðgreining innan skólans Skólaskylda er í grunnskólum og börn eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar. Samkvæmt 2. gr. grunnskólalaga ber grunnskólum að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. Í aðalnámskrá grunnskóla er einnig fjallað um jöfn tækifæri barna til náms. Þar kemur fram í kafla 7.2 að allir nemendur í grunnskóla eigi rétt á að stunda nám við sitt hæfi og að tækifærin eigi að vera jöfn óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins. Í þessu efni á skólinn að vera fyrir öll börn án aðgreiningar. Á nýlegu málþingi um skólaforðun kom fram að hópur barna upplifir kerfisbundna aðgreiningu innan skólans. Þeim er vísað úr skólastofunni, meðal annars vegna þess að þau ráða ekki við aðstæður, og þau fá ekki að taka þátt í viðburðum á vegum skólans. Þannig fá þau daglega skilaboð um að þau tilheyri ekki skólasamfélaginu og ættu frekar að sitja heima. Slík höfnun brýtur hvern einstakling niður og það ætti því ekki að koma á óvart að börn sem búa við þetta umhverfi forðist skólann með öllum ráðum. Embætti umboðsmanns barna fær reglulega erindi sem lýsa aðstæðum þessara barna. Skólinn, sem á að vera jöfnunartæki og umhverfi þar sem börn vaxa og þroskast, verður þessum hópi óbærilegur. Hegðunarvandi barnanna vex í kerfi þar sem þau eru kerfisbundið brotin niður. Á síðustu misserum hafa fjölmargar frásagnir verið birtar um börn og ungmenni sem hafa lent í alvarlegum vímuefnavanda. Það sem þau eiga nánast undantekningalaust sameiginlegt er erfið og útilokandi skólaganga oft nánast frá fyrsta degi. Bið eftir þjónustu Í tölum sem embættið birtir reglulega um bið barna eftir þjónustu kemur fram að bið eftir greiningu hefur vaxið stöðugt á síðustu árum og er biðin orðin tvö til þrjú ár eftir ADHD- og einhverfugreiningu. Við bætist í mörgum tilvikum löng bið hjá sveitarfélögum eftir frumgreiningu. Það er því ekki óalgengt að börn bíði upp undir fimm ár eftir greiningu, eða stóran hluta skólagöngunnar. Formleg greining er ekki forsenda stuðnings en vitanlega getur fagleg greining tryggt að stuðningurinn sé sniðinn að þörfum barnsins og eftir því sem við á nauðsynleg lyf. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um bið eftir talmeinafræðingum en í skýrslu sem birt var af starfshópi heilbrigðisráðuneytisins árið 2024 kom fram að rétt undir fimm þúsund börn biðu þá eftir þjónustu þeirra. Í þessum hópi eru fjölmörg börn á leikskólaaldri, og ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi málþroska við upphaf skólagöngunnar og afleiðingar af langri bið eftir þjónustunni. Börnin bera skaðann Í fjölmiðlum birtast reglulega fréttir þar sem börn eru sögð hafa beitt ofbeldi innan skólans en þegar mál þeirra eru skoðuð er oftar en ekki um að ræða börn sem ráða ekki við þær aðstæður sem þau eru sett í. Það er ekki hægt að ætlast til þess að börn með taugaþroskaraskanir eða aðrar áskoranir aðlagi sig að skólanum heldur verður umhverfi barna að vera þannig úr garði gert að það ýti undir þroska þeirra og styrkleika. Skóli án aðgreiningar krefst þess að öllum börnum standi raunverulega til boða að sækja nám í umhverfi sem hentar þörfum þeirra. Nauðsynlegt er að skólarnir hafi aðgang að viðeigandi úrræðum og að þar starfi fagfólk sem getur stutt við hvert barn svo þau megi öll ná sem bestum þroska á sínum forsendum. Þetta hefur vissulega tekist í mörgum skólum víða um land en staðan er þó sú að of mörg börn standa afar höllum fæti innan skólakerfisins og við því þarf að bregðast tafarlaust. Salvör Nordal, umboðsmaður barna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Fjölskyldur í forgang strax Lét Harry og Meghan ekki raska ró sinni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Sviptur ökuréttindum á staðnum Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðamaðurinn er enn ófundinn Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Þrír hafa verið náðaðir Jón Pétur með buxurnar á hælunum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Þrjú ár fyrir þrjú kíló af kókaíni Skipbrot samgöngustefnunnar Björn Steinar leikur í Notre Dame Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Fjölskyldur í forgang strax Lét Harry og Meghan ekki raska ró sinni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Sviptur ökuréttindum á staðnum Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðamaðurinn er enn ófundinn Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Þarf árangursríka útlendingastefnu Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Þrír hafa verið náðaðir Jón Pétur með buxurnar á hælunum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Þrjú ár fyrir þrjú kíló af kókaíni Skipbrot samgöngustefnunnar Björn Steinar leikur í Notre Dame Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article