Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.3.2026 | 14:55 Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Anton Brink Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Telur skólann vera að bregðast syni sínum » Fleiri tengdar fréttir Niðurstöður matsferils í lesskilningi og stærðfræði verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt nýrri reglugerð. Þetta kemur fram í tilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytisins. Birting hefst vorið 2027 og nær til skyldubundinna fyrirlagna í 4., 6. og 9, bekk. Hægt verður að skoða niðurstöður niður á landsvæði, sveitarfélög og skóla og sjá þróun á milli ára. Minnt á mikilvægi menntunarstigs foreldra Athygli vekur að í tilkynningu ráðuneytisins er sá varnagli hafður að árangur nemenda sé ekki alfarið undir grunnskólum kominn. Þannig er sérstaklega tekið fram að rannsóknir gefi til kynna fylgni milli menntunarstigs og félagsstöðu foreldra og námsárangurs barna. „Því getur menntunarstig og félagsstaða íbúa í ákveðnum sveitarfélögum haft umtalsverð áhrif til hækkunar á námsárangri í því sveitarfélagi og má sjá vísbendingar um það í niðurstöðunum,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Umdeild próf lögð fyrir nema Áttu ekki að birtast opinberlega Í viðtali við Morgunblaðið sumarið 2024 sagði Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, að stefnt væri að því að óheimilt yrði að birta niðurstöður einstakra skóla eða sveitarfélaga úr matsferlinum opinberlega, svo ekki yrði hægt að gera samanburð þar á milli. Viðtalið var tekið þegar matsferill var enn í þróun. „Hver og einn skóli mun alltaf vita hvar hann stendur gagnvart landsmeðaltalinu. En það er ekki góðs viti að fara að búa til einhvers konar samkeppni milli skóla. Það gefur vissulega einhverjar upplýsingar að vita hvar viðkomandi skóli stendur út frá meðaltali en það þarf að taka tillit til ýmissa hluta eins og til dæmis samsetningar nemendahópsins og hún er gríðarlega mismunandi eins og við þekkjum,“ sagði hún þá. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Nú er m.a. ljóst að nýja námsmatið verður skyldubundið í minnst þremur árgöngum, en ekki valkvætt eins og til greina kom. Nú er einnig ljóst að niðurstöðurnar verða gerðar opinberar eftir skólum. Frétt af mbl.is Þetta á að koma í stað samræmdu prófanna Opinber birting umdeild Ljóst er að ekki ríkir einhugur um þá ákvörðun að opinbera niðurstöðurnar. Fjöldi umsagna barst í samráðsgáttina þar sem drögin um reglugerðin voru kynnt. Umsagnaraðilar lýstu m.a. áhyggjum af því að öll kennsla verði miðuð við að fá háaeinkunn og að ákveðnir nemendur verði ekki látnir þreyta prófin svo skólinn fái ekki dóm fjölmiðla. Þá höfðu enn aðrir áhyggjur af því að opinber birting myndi auka hættu á að nemendahópar verði fyrir einelti. „Hætta er á að með því að opinbera samræmt námsmat dragi niðurstöðurnar athyglina frá námi í víðum skilningi og stuðli að þrýstingi um samkeppni og árangur á kostnað fagmennsku, jafnræðis og velferðar nemenda. Væri nær að leggja áherslu á aukna námsgagnagerð og styðja þannig á uppbyggilegan hátt við nám nemenda þessa lands,“ sagði í umsögn Álfhildar Leifsdóttur. Einn skólastjórnandi sagðist þó fagna þessari breytingu. „Ef annar grunnskóli í okkar nærumhverfi myndi endurtekið sýna fram á áberandi betri árangur, hvort sem er í tilteknum námsgreinum eða í ákveðnum þáttum skólastarfsins, þá myndi ég leita þangað tafarlaust, kynna mér starfshætti og nýta þær hugmyndir sem best reynast,“ segir í umsögn Kristjáns Ómars Björnssonar. Frétt af mbl.is Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Telur skólann vera að bregðast syni sínum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Hrognavinnsla hafin í Neskaupstað Krísufundur í spænsku höfuðborginni Grafarvogur friðlýstur Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Norðmaður féll í Íran Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Hrognavinnsla hafin í Neskaupstað Krísufundur í spænsku höfuðborginni Grafarvogur friðlýstur Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article