Formaður Blaðamannafélags Íslands bindur vonir við að Síminn ætli sér stóra hluti á fjölmiðlamarkaði með fyrirhuguðum kaupum á miðlum Sýnar. Neikvætt væri fyrir samfélagið að missa sjónvarpsfréttir Sýnar, ef svo færi, og misskilningur sé að hugsa um sjónvarpsfréttir sem barn síns tíma. Bindur vonir við að Síminn ætli að efla fréttastofuna Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir fyrirhuguð kaup Símans á miðlum Sýnar stór tíðindi. „Þarna er um að ræða annan af tveimur stærstu fjölmiðlum landsins og rótgróin fréttastofa sem á sess í hjörtum landsmanna og sinnir gríðarlega mikilvægu almannaþjónustuhlutverki, að veita almenningi upplýsingar og fréttir.“ Fréttastofa Sýnar sé auk þess eina fréttastofa landsins, fyrir utan RÚV, sem sé með sjónvarpsfréttir. Sala Sýnar á miðlum fyrirtækisins á netinu og í útvarpi til Símans tekur um eitt ár. Þetta kom fram á fundi Herdísar Drafnar Fjeldsted, forstjóra Sýnar, með starfsfólki fyrirtækisins í morgun. Allt er óbreytt meðan á samningaviðræðum stendur. Sjónvarpsstöðin Sýn og enski boltinn fylgja ekki með. Sigríður Dögg segir mikla óvissu fram undan. „Síminn hefur gefið það út að hann ætli ekki að kaupa sjónvarpsstöðina Sýn en það er ekkert því til fyrirstöðu að Síminn verði með sjónvarpsfréttir með þetta öfluga, öfluga fólk. Þessa öflugu fréttamenn og þessa öflugu fréttastofu. Það verður svolítið tíminn að leiða í ljós og ég vona innilega að þetta verði gæfuspor fyrir þjóðina.“ Síminn sé fjárhagslega öflugra fyrirtæki en Sýn. „Þannig að við bindum bara vonir við að Síminn ætli sér stóra hluti á fjölmiðlamarkaði og ætli að efla fréttastofuna og gera enn þá betur. Það hefur ekkert verið neitt sérstaklega bjart yfir rekstrinum hjá Sýn þannig að við verðum bara að vona það besta og trúa því að þetta verði gæfuspor.“ Formaður Blaðamannafélags Íslands segir að það yrði neikvætt fyrir þjóðina ef sjónvarpsfréttum Sýnar verði hætt. Þó að töluverð óvissa sé með framhaldið voni hún að breytingarnar verði jákvæðar. Síminn standi betur fjárhagslega en Sýn. Kaup upp á rúmlega fimm milljarða sýni að það séu verðmæti í fjölmiðlum Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framhald sjónvarpsfrétta og Sigríður Dögg segir að neikvætt væri fyrir samfélagið að missa sjónvarpsfréttir Sýnar, ef svo færi. „Það væri náttúrulega bara mjög sorglegt, eins og við höfum bent á í tengslum við ákvörðun Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir um helgar. Við höfum bent á að það væri mjög neikvætt fyrir samfélagið allt ef við værum bara með eina sjónvarpsfréttastöð á landinu og mikilvægt fyrir RÚV að fá samkeppni, mikilvægt fyrir almenning að geta horft á sjónvarpsfréttir á tveimur stöðum.“ Misskilningur sé að hugsa að sjónvarpsfréttir séu barn síns tíma og að þær fái ekki áhorf. „Það er bara ekki satt. Sjónvarpsfréttir njóta mikils trausts. Sýn hefur haldið því fram að 50 þúsund manns horfi á sjónvarpsfréttir sínar og það eru verðmæti sem ég vona að Síminn sjái að skipti máli fyrir vörumerki Símans og fyrir þessi samlegðaráhrif sem eru milli þessara miðla.“ Hún vonar að Síminn sýni metnað í því að auka fjármagn í reksturinn á fréttastofunni. „Sem er búin að vera að glíma við niðurskurð árum saman. Það að Síminn sé tilbúinn að borga rúma 5,2 milljarða fyrir tvo fjölmiðla sem byggja fyrst og fremst á blaðamennsku og fréttavinnslu, það finnst mér jákvætt fyrir íslenskan fjölmiðlamarkað og sýnir að það eru verðmæti í fjölmiðlum. Þannig að þeir segjast vera, allavega miðað við það sem maður heyrði af þessum starfsmannafundi í morgun, áhugasamir og jákvæðir og við verðum að trúa því að það liggi heilindi þar að baki.“ Trúir því að Síminn ætli að nýta verðmætan mannauð Sigríður Dögg bendir á að fréttir séu dýrar. Það sé dýrt að búa til fréttir og enn dýrara að búa til sjónvarpsfréttir. „Og við þurfum náttúrulega sem samfélag að spyrja okkur að því hvers vegna við erum ekki tilbúin að borga fyrir fréttaefni í sama mæli og nágrannaþjóðir okkar. Við þurfum að breyta því hugarfari vegna þess að fréttir eru gríðarlega mikilvægar. Við vitum það og erum sammála um það.“ Íslendingar séu aldir upp við frímiðla. Vísir og Mbl séu það að mestu leyti. Fréttablaðið var lengi útbreiddasta dagblað landsins sem var ókeypis. „Það tekur tíma að breyta þessu og sem betur fer eru stjórnvöld að stíga stórt skref og auka stuðninginn við einkarekna miðla.“ Hún trúir því að Síminn ætli sér stóra hluti í þágu íslensks samfélags með kaupunum. Þó að ekki hafi verið tilkynnt um neinar uppsagnir má búast við að þær geti orðið við breytingarnar. Fólksflótti hefur verið úr fjölmiðlastéttinni lengi. Sigríður Dögg segist ætla að trúa því að það verði ekki mikið um uppsagnir. „Ég trúi því að Síminn ætli að nýta þennan gríðarlega verðmæta mannauð sem þarna er. Það er að borga rúma fimm milljarða fyrir þessi vörumerki og þessi vörumerki eru ekkert án starfsfólksins sem vinnur þar. Þannig að við skulum bara spyrja að leikslokum þegar að því kemur.“