- What: Discussion on AI governance and international cooperation
- Impact: Focus on AI development and regulation in Europe
Innlent | mbl | 12.3.2026 | 16:05 Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Lilja segir okkur djúpt í á gervigreindarbyltingar. Öll lönd séu að fást við svipaðar áskoranir og hugsunin sé að hér séu lönd sem eiga margt sameiginlegt og við getum mögulega samnýtt krafta okkar. Ljósmynd/Colourbox Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa » Fleiri tengdar fréttir Opnunarhóf samnorrænu gervigreindarmiðstöðvarinnar New Nordics AI fer fram í Iðnó í kvöld milli klukkan 18 og 20. Í tilkynningu frá Almannarómi, sem kemur að stofnun gervigreindarmiðstöðvarinnar, segir að með henni sé sótt fram í krafti stærðarinnar til að auðvelda ábyrga þróun og innleiðingu gervigreindar og efla sameiginlega rödd innan Evrópu og á heimsviðinu. Frétt af mbl.is Katrín fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI Sækja fram í krafti stærðarinnar Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, segir öll Norðurlöndin samankomin í gervigreindarmiðstöðinni og hugmyndin sé að þau baltnesku geti slegist í hópinn síðar meir. „Við höfum orðað markmið verkefnisins með þeim hætti að sækja fram í krafti stærðarinnar, þ.e.a.s. að sameina rödd okkar, ekki síst inni í Evrópu og út í heim,“ segir Lilja. Stjórnendur úr atvinnulífi og frá hinu opinbera hafa fengið boð á opnunarhófið. Lilja segir að meiningin sé að kalla saman fólk sem hefur áhrif til að stíga alvöruskref í gervigreind. „Við erum auðvitað að vona að í gegnum þetta getum við lyft gervigreindarmálum svolítið á Íslandi í gegnum New Nordics AI.“ Frétt af mbl.is Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Hafa unnið stórvirki Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra flytur ávarp og Gísli Ragnar Guðmundsson, verkefnastjóri New Nordics AI á Íslandi, flytur erindi. Katrín Jakobsdóttir, fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI, stýrir pallborðsumræðum þar sem einnig taka þátt Nelli Blinova frá tæknimálaráðuneyti Úkraínu, Þorsteinn Siglaugsson frá Hagstofunni, Finnur Pind frá Treble Technologies og Cecilia Leveaux frá norrænu ráðherranefndinni. Fundarstjóri er Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima en hann er einnig stjórnarformaður Almannaróms. „Þarna verður Nelli Blinova frá tæknimálaráðuneyti Úkraínu en þau hafa unnið stórvirki í að koma upp stafrænum innviðum til þess að geta gert það sem þau þurfa að gera við vægast sagt óvenjulegar aðstæður. Það er kannski eitthvað þar sem hægt er að læra af,“ segir Lilja. Hún segir að Finnur Pind fari fyrir einu af mest spennandi sprotafyrirtækjunum hér á landi og vinni mjög djúpt með gervigreind. Þá verði Cecilia Leveaux frá Norrænu ráðherranefndinni á svæðinu en Norræna ráðherranefndin sé í rauninni upphaflegi og stóri fjármögnunaraðili verkefnisins. Þá segir Lilja spennandi að Þorsteinn Siglaugsson frá Hagstofunni mæti en Hagstofan birti í vikunni áhugaverðar tölur um notkun gervigreindar á Íslandi. Segir hún eitt af tækifærunum fyrir New Nordics AI að fara að nýta gervigreind á miklu dýpri grundvelli og finna nýja leið í verðmætasköpun. Blása byr undir vængi þeirra sem vilja framkvæma Hún segir að nú sé gervigreindarbylting eins og flestir séu eflaust orðnir þreyttir á að heyra. „Við erum einhvern veginn djúpt í ánni. Það eru öll lönd að fást við svipaðar áskoranir og hugsunin er að hér séu lönd sem eiga margt sameiginlegt og við getum mögulega samnýtt krafta okkar, lært af því sem hinir eru að gera og kannski líka sótt fram sameiginlega. Það er svona grunnhugsunin.“ Lilja segir ætlunina í kvöld að setja gervigreindarþróun í samhengi við samtímann og vonandi blása byr undir vængi þeirra sem vilja framkvæma. Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Ljósmynd/Aðsend Ráðherra úthlutar úr hvatasjóði Í opnunarhófinu í kvöld mun ráðherra úthluta styrkjum úr máltæknisjóðnum Skerfi, sem ætlað er að hvetja til notkunar tækni á íslensku og máltækni. Sjóðurinn er hvatasjóður þar sem þeir sem fá úthlutað styrkjum leggja jafn mikið á móti. Styrkjunum er úthlutað í annað sinn en á síðasta ári hlaut ýmiss konar starfsemi styrki, sprotafyrirtæki í menntageiranum, heilbrigðisgeiranum og fjölmiðlageiranum. Tengdar fréttir Gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Allt undir í lokaumferð úrvalsdeildarinnar Vilja stíga alvöruskref í gervigreind 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Norskur framherji á leið í Kópavoginn? Lárus oddviti Miðflokksins Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borga ekki umferðarsektir Vatnsból í hættumat Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ferðamenn lentu á kafi í vatni Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Allt undir í lokaumferð úrvalsdeildarinnar Vilja stíga alvöruskref í gervigreind 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Norskur framherji á leið í Kópavoginn? Lárus oddviti Miðflokksins Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Af hverju var dómurinn ómerktur? Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir