- What: Iceland is participating in EU sanctions against the Iranian Revolutionary Guard.
- Impact: The sanctions target one of Iran's most powerful organizations, which the EU has designated as a terrorist organization.
Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum ESB gegn íranska byltingarverðinum, einni valdamestu stofnun landsins. ESB skilgreindi byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök í síðasta mánuði, en með samþykkt ráðherraráðs sambandsins í gær er Ísland orðinn aðili að þeim aðgerðum. Vísir sagði fyrst frá í dag. Hvað er íranski byltingarvörðurinn? Íranski byltingarvörðurinn er ein af valdamestu stofnunum landsins, komið á fót nokkrum mánuðum eftir að klerkastjórnin náði völdum þar árið 1979. Þó að byltingarvörðurinn sé skipaður um 200 þúsund hermönnum heyrir hann ekki undir íranska herinn heldur beint undir erkiklerkinn Ali Khamenei. Tilgangurinn hefur frá upphafi verið að vernda klerkastjórnina, halda uppi reglu í landinu og koma í veg fyrir mögulegt valdarán. Byltingarvörðurinn hefur sterk ítök í írönskum stjórnmálum og margir fyrrverandi hermenn eru nú hátt settir í stjórnkerfinu. Að auki ráða þeir yfir fjarskiptum, stórum hluta efnahagslífsins og allt að helmingi olíuframleiðslunnar. Stofnunin er með eigin flugher og sjóher auk þess að stjórna eldflaugaframleiðslu landsins. Deild innan byltingarvarðarins sem kallast Basij er yfirleitt kölluð til þegar óróleiki gerir vart við sig, til dæmis í mótmælunum sem hafa átt sér stað undanfarnar vikur. Íslandi er skylt með lögum að innleiða þvingunaraðgerðir alþjóðastofnana eins og ESB „til að viðhalda friði og öryggi og/eða til að tryggja virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi“ eins og það er orðað á heimasíðu stjórnarráðsins .