Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokar augum blám: Huggulegur lestur en hefði mátt vera óhugnanlegri

Read Full Article →

Lokar augum blám er önnur bók Margrétar Höskuldsdóttur um lögregluteymið Rögnu og Berg og hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin í febrúar. „Bergur lögreglumaður býr á Flateyri þar sem par er að gera upp hús. Kajakræðarar hverfa og Bergur rannsakar málið ásamt samstarfskonu sinni. Það er í stuttu máli söguþráðurinn,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV. „Þetta er nokkuð dæmigerð íslensk glæpasaga. Hún er þægileg aflestrar en hún er dálítið orðmörg. Það er oft verið að lýsa hlutum og maður er búinn að ná þeim og það er haldið áfram. Það kemur dálítið niður á flæðinu.“ Hún segist hefði viljað fá aðeins meira spennandi aðalpersónur. „En þetta er alveg sæmilega spennandi og bara góð afþreying. Hún skilur reyndar ekki mikið eftir sig en maður ætlast heldur ekki til þess.“ Draugagangurinn þarf að standa undir sínu Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þráir parið kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu. Ingibjörg Iða Auðunardóttir, gagnrýnandi, segir bókina dálítið áþekka Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur. „Þau eru að gera upp hús á afskekktum stað og það er einhvers konar dulúð.“ „En hún talar kannski svolítið við bækurnar um Hildi á Ísafirði hvað varðar persónusköpun,“ bætir hún við og vísar í bókaflokk Satu Rämö. „Þetta eru dálítið notalegar persónur. Það er það sem ég tek með mér úr lestri þessarar bókar.“ Henni þótti bókin þó aðeins lengi af stað og áttaði sig ekki á því hvaða tilgangi laxeldið í sögunni þjónaði til að byrja með. „En hún er hugguleg aflestrar. Ekta íslensk glæpasaga en hún hefði mátt vera aðeins óhugnanlegri.“ „Ef þú ætlar að teikna upp einhvern draugagang þá þarf hann svolítið að standa undir sínu,“ segir Ingibjörg. Henni þótti bókin því ekki vekja upp óhug með sér en viðurkennir að það þurfi kannski svolítið mikið til þessa dagana. „Ég er búin að lesa allt og það er ekkert sem kemur á óvart. Þannig kannski er ég ekki góður mælikvarði á það en ég hefði betur viljað að þetta væri alveg raunsætt. Þá held ég bókin væri enn þá sterkari.“ Gagnrýnendur Kiljunnar eru sammála um að Lokar augum blám eftir Margréti Höskuldsdóttir sé klassísk íslensk glæpasaga, sæmilega spennandi og notaleg en skilji kannski lítið eftir sig. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Lokar augum blám eftir Margréti Höskuldsdóttur. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article