Íslensku bókmennta- og glæpasagnaverðlaunin voru veitt í vikunni sem leið. Ævar Þór Benediktsson hlaut verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Skólastjórann sem sló hressilega í gegn um jólin og Margrét Höskuldsdóttir hlaut Blóðdropann fyrir þriðju glæpasöguna sína, Lokar augum blám. Egill Helgason ræddi við þau í Kiljunni. Vandræðarlegt að drepa alla á Þingeyri „Ég er svolítið ný í bransanum og mjög glöð með það sem hefur komið um mínar bækur. Þetta er auðvitað rosalega mikil viðurkenning og ég er afskaplega glöð með það, þetta er mjög gleðilegt,“ segir Margrét. Lokar augum blám er önnur bók hennar um lögregluteymið Rögnu og Berg, sú fyrri hét Í djúpinu og kom út 2024. Bækur hennar gerast allar á Vestfjörðum því þó svo að hún hafi búið í Reykjavík frá 16 ára aldri þá er hún samt alltaf Vestfirðingur í hjarta. „Ég fer rosalega mikið vestur og þar er bara hjartað og ræturnar. Mér finnst mjög gaman að vinna með það.“ Sjálf er Margrét frá Þingeyri í Dýrafirði en lætur bókina gerast á Flateyri. „Mér fannst ég ekki geta drepið alla á Þingeyri í sama firðinum. Mér fannst ég þurfa að flakka á milli. Það væri svolítið vandræðalegt ef það væri alltaf verið að leysa mál á sama staðnum.“ Bækur hennar eru persónudrifnar enda hefur hún gaman af því að leyfa lesendum að kynnast persónum bókarinnar nokkuð vel. Ekki aðeins lögregluteyminu heldur fórnarlömbunum líka. Aldrei of seint að fylgja draumunum Í þakkarræðu sinni þegar Margrét veitti verðlaununum viðtöku tók hún fram að hennar fyrsta bók hafi komið út þegar hún var 49 ára. „Ég hafði sinnt kennslu í þó nokkur ár en geymdi þennan draum innra með mér. Að söðla um, að láta reyna á vængina. Að prófa að skrifa bók,“ sagði hún. Skilaboð hennar voru því að það sé aldrei of seint að elta draumana, þeir gætu nefnilega ræst. Ævar Þór og Margrét hlutu Íslensku bókmennta- og glæpasagnaverðlaunin fyrir bækur sínar. Margrét segir að á meðan hugmyndastreymið sé gott þá sé í lagi að stefna að bók á ári. Ævar hefur gefið út hátt í 40 bækur en telur sig ekki duglegri en aðra. Fór beint í hjartað Ævar Þór hlaut verðlaunin ásamt Elínu Elísabetu Einarsdóttur myndhöfundi. Hann hefur skrifað svo margar barnabækur að hann hefur varla tölu á þeim sjálfur en Skólastjórinn er 39. bók hans. Þetta er þó í fyrsta sinn sem hann hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin. „Þetta er afskaplega gaman og mér þykir mjög vænt um þessa tilteknu bók. Mér þykir náttúrulega vænt um allar bækurnar mínar en þessa alveg sérstaklega.“ „Þessi viðurkenning fór alveg bara beint í hjartað. Mér þykir mjög vænt um þetta.“ Aldrei lent í því að vera stoppaður úti í búð vegna bóka sinna áður Ævar Þór segir vinsældir Skólastjórans hafa komið sér sjálfum mikið á óvart. „Hún hitti í eitthvað mark þannig að bæði börn og fullorðnir náðu að finna sína útgáfu. Ég las dóm á netinu um daginn þar sem kona samsamaði sig svo mikið við fullorðna fólkið í bókinni, sem er svo gaman því þau eru aukakarakterar en það er svo fallegt að allir eru að tengja við einhvern í bókinni.“ „Ég hef aldrei lent í því áður að fólk er að stoppa mig úti í búð og spjalla við mig um bókina.“ Bókin segir frá Salvari, 12 ára dreng sem sækir um að verða skólastjórinn í skólanum sínum í gríni vegna villu í tölvukerfi Reykjavíkurborgar. „Eins og kemur fyrir á bestu bæjum. Þá verður hann skólastjórinn og ræður öllu og er með alls konar hugmyndir um það hvað má betur fara í íslensku skólakerfi.“ Hugmyndin er byggð á félaga Ævars Þórs, Salvari Þór sem aðalpersóna bókarinnar er nefnd eftir. „Þegar við vorum saman í Menntaskólanum á Akureyri, 2003 og þá 18 ára, þá sótti hann um að verða nýi skólameistari menntaskólans þegar Tryggvi Gíslason var að hætta.“ „Honum fannst hann vera mjög hæfur í starfið en fékk það því miður ekki, kannski sem betur fer, myndu einhverjir segja. Þessi hugmynd lúrði alltaf í kollinum á mér.“ Fyrir nokkrum árum spurði hann félaga sinn hvort hann mætti nota þessa hugmynd. „Ég ætla að yngja þig aðeins upp, ég held að það sé skemmtilegra og hættulegra ef þú ert 12 ára og ég ætla að láta þig fá stöðuna og sjá hvað gerist. Það virðist hafa virkað svona vel.“ Húmor getur opnað dyr Bókin þykir stórskemmtileg og fyndin og Ævar Þór segir það vera vegna þess að honum þykir gaman að fíflast og geta laumað því inn í bækur sínar. „Mér finnst húmor geta opnað svo margar dyr. Mig langaði að hafa það svolítið á bak við eyrað.“ Í þakkarræðu sinni nefndi hann enn fremur að hann væri alltaf meðvitað og ómeðvitað að skrifa fyrir Ævar í fimmta bekk. Ætlaði aldrei að kenna fyrsta bekk Margrét kenndi yngsta stigi í grunnskóla og segir bækur Ævars Þórs gjarnan hafa verið vinsælar meðal litlu lestrarhestanna í yndislestri. Lengst af kenndi hún í Álftamýrarskóla og fylgdi krökkunum frá fyrsta upp í fjórða bekk. „Þegar ég útskrifaðist úr kennaraháskólanum þá ætlaði ég aldrei að kenna fyrsta bekk, aldrei. Það var það eina sem ég vissi. Svo „festist“ ég þar, innan gæsalappa, en fannst það æðislegt. Ég hafði mjög gaman af því.“ Hún fékk því það verkefni að kenna ungum krökkum að lesa og telur það hafa gengið vel. „Ég vona það allavega. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt og hafði virkilega gaman af því að fylgja börnum þessi fyrstu skref sem þau eru að taka og sjá þau verða að lesendum.“ „Mér fannst þetta mjög skemmtilegt verkefni.“ Lofar að taka pásu ef hún er farin að þvinga fram hugmyndir Margrét er byrjuð að vinna í næstu bók sem verður sjálfstætt framhald af Lokar augum blám. „Ég er með fullt af hugmyndum en að koma þeim niður getur kannski verið flóknara,“ segir hún um aðrar bækur. Hún segist vona geta tekið þátt í þeirri hefð að senda frá sér eina bók á ári eins og margir glæpasagnahöfundar gera. „Mér finnst þetta skemmtilegt og af því að ég ákvað að hætta sem kennari og er bara í verkefnum þá hef ég mikinn tíma. Ég get einbeitt mér mjög mikið að þessu.“ „Á meðan hugmyndastreymið er og maður fær góða hugmynd þá held ég að það sé allt í góðu,“ segir hún um að gefa út eina bók á ári. „En ég lofa að taka mér pásu ef ég þarf að þvinga fram bókina.“ Allir eru duglegir Ævar Þór heldur einnig ótrauður áfram að skrifa en hann starfar einnig sem leikari og hefur nýlokið við sýningar á einleiknum Kafteinn frábær sem hlaut góðar viðtökur. „Núna er ég bara á bólakafi í bókinni sem kemur út núna í vor og svo er ég aðeins byrjaður að krukka í bókinni sem kemur út næstu jól.“ Þegar Egill spyr hvort hann sé „ógeðslega duglegur“ svarar Ævar Þór: „Já, en það eru allir duglegir. Það eru bara meiri læti í mér, held ég.“ Ævar Þór og Margrét hlutu Íslensku bókmennta- og glæpasagnaverðlaunin fyrir bækur sínar. Margrét segir að á meðan hugmyndastreymið sé gott þá sé í lagi að stefna að bók á ári. Ævar hefur gefið út hátt í 40 bækur en telur sig ekki duglegri en aðra. Rætt var við Margréti Höskuldsdóttur og Ævar Þór Benediktsson í Kiljunni. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.