Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Stúlkan var alltaf svolítið sérstök“

Read Full Article →

Maður sem leigði fjölskyldu Margrétar Löf hestabás haustið 2024 segist hafa furðað sig á samskiptum hennar og foreldra hennar. Hjónin hafi sinnt meirihluta erfiðisvinnunnar sem fylgdi umhirðu hestsins meðan Margrét stóð gjarnan hjá. Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd í 16 ára fangelsi í fyrra fyrir að verða föður sínum, Hans Roland Löf, að bana og fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart móður sinni. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að Margrét hafi ítrekað beitt foreldra sína ofbeldi. „Maður átti bara svona hlýleg samtöl við þau hjónin. Stúlkan var alltaf svolítið sérstök,“ segir Sigurbjörn Bárðarson, sem leigði fjölskyldunni bás fyrir hest Margrétar. Sigurbjörn Bárðarson segist hafa gert athugasemdir við samskipti Margrétar Löf við foreldra sína eftir að hafa leigt fjölskyldunni hestabás 2024. Margrét var dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að verða föður sínum að bana og að ráðast á móður sína. Sigurbjörn er einn þeirra sem báru vitni fyrir dómi og sögðust hafa orðið vitni að ofbeldi. Rætt var við hann í þættinum Vítahringur Margrétar Löf á Rás 1 . Viðtalið var sýnt í Kastljósi í gær . Hann segir Margréti gjarnan hafa staðið hjá meðan hjónin sinntu hestinum. Þau hafi vísað athugasemdum hans á bug. „Það var alltaf sama blíða viðmótið – hafðu engar áhyggjur, þetta skiptir engu máli, við erum vön þessu.“ Í eitt skipti hafi hann átt orðaskipti við Margréti vegna þessa. Hann segir Margréti hafa strunsað burt og komið til baka skömmu síðar og sagt hann hafa grætt sig. „Ég hefði náttúrulega ekkert átt að vera að munnhöggvast við hana en ég svaraði henni.“

Share this article