Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vítahringur Margrétar Löf

Read Full Article →

Margrét Halla Hansdóttir Löf var í desember 2025 dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að verða föður sínum að bana og fyrir stórfellda líkamsárás á móður sína. Hún situr nú í fangelsinu á Hólmsheiði en hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar. Við meðferð sakamálsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Í þáttunum Vítahringur Margrétar Löf á Rás 1 er reynt að varpa ljósi á hvers vegna málin þróuðust á versta veg hjá fjölskyldunni í Súlunesi. Gengu milli sérfræðinga Það var samt ekki eins og fjölskyldan hefði ekki reynt að takast á við vandamálin. Árin áður en Hans var sviptur lífi gengu Margrét og foreldrar hennar örvæntingarfull milli sérfræðinga. Þau hittu sálfræðinga, félagsfræðinga og fjölskylduráðgjafa. Margrét lýsti vaxandi vanlíðan og foreldrarnir vildu vita hvernig hægt væri að láta henni líða betur. Í viðtölunum lögðu þau smám saman spilin á borðið og báðu um hjálp. Vítahringur Margrétar Löf - fyrsti þáttur er aðgengilegur í spilara RÚV: Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Nýir þættir um Margréti varpa ljósi á flókinn fjölskylduvanda sem virtist hverfast um andlegt ástand hennar.

Share this article