„Það sem mér finnst verst í þessu öllu saman er að það hefði verið hægt að grípa inn í.“ Þetta segir hálfbróðir Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem var dæmd fyrir að bana föður þeirra í Súlunesi í apríl 2025. Systkinin eru samfeðra en ólust ekki upp saman. Í síðari þætti Vítahrings Margrétar Löf á Rás 1 lýsir hann sinni hlið á málinu. Hann kýs að koma ekki fram undir nafni. Í þáttunum er reynt að varpa ljósi á hvers vegna málin þróuðust á versta veg hjá fjölskyldunni í Súlunesi. Bróðir Margrétar er ósáttur við að heilbrigiðsstarfsfólk hafi ekki aðhafst meira þegar það fór að gruna að faðir hans sætti heimilisofbeldi. Hans Löf leitaði sér ítrekað læknisaðstoðar vegna áverka eftir Margréti dagana fyrir manndrápið. Bróðir Margrétar segist hafa verið grunlaus um ofbeldið sem viðgekkst á heimili þeirra. „Ég skil alveg að fólk sé að velta því fyrir sér: Hvar var bróðirinn? Af hverju steig hann ekki inn í? Ég skil það alveg, því mín saga er ekki þarna úti. Það veit enginn hvernig okkar samband var. Fólk hélt kannski að ég hefði alist upp á heimilinu og þetta væri hið hefðbundna fjölskyldumynstur. En það var ekki. Ég hefði stigið inn í á sekúndunni hefði ég vitað af þessu.“ Bróðir Margrétar Löf telur að koma hefði mátt í veg fyrir að Margrét banaði föður þeirra, Hans Löf, í fyrra. Hann lýsir deginum þegar Margrét var handtekin og upplifun sinni af málinu. Lýsir föður sínum sem umhyggjusömum ljúflingi Hálfbróðir Margrétar var kominn vel á unglingsár þegar hún fæddist. Hann hafði í raun ekki kynnst föður sínum fyrr en nokkrum árum fyrr. Samband móður hans og Hans Rolands Löf stóð stutt og feðgarnir kynntust ekki fyrr en drengurinn var 12 ára. Í þættinum lýsir hann því hvernig samband þeirra þróaðist. Hann hugsar hlýlega til föður síns. „Hann var mikill ljúflingur, vildi öllum vel og sýndi fólki mikla umhyggju. Honum var ekki sama um fólk. Hann var líka mikill grínisti og hafði lúmskan húmor.“ Þegar Margrét fæddist var bróðir hennar kominn á menntaskólaaldur. Aðspurður hvernig Margrét hafi verið sem barn, segist hann hafa vonað að sýnileg frekja og yfirgangur myndi eldast af henni. Það hafi alltaf verið augljóst að hún stjórnaði foreldrum sínum. Hann taldi sig ekki í aðstöðu til að gera athugasemdir við það. „Ég bjó aldrei hjá þeim. Þegar ég kom þá var ég bara sem gestur.“ Áverkarnir gríðarlegt sjokk Bróðirinn lýsir morgninum þegar lögreglan hringdi í hann og tilkynnti honum að faðir hans væri á gjörgæslu og að systir hans hefði verið handtekin. Honum hafi þótt fréttirnar óskiljanlegar þar sem hann var grunlaus um ofbeldi á heimilinu. Næsta áfall kom svo við komuna á spítalann. „Þetta var mikið sjokk þegar ég labbaði inn og sá framan í hann. Ég held ég hafi staðið þarna gapandi örugglega í mínútu. Ég var algjörlega óundirbúinn því.“ Miklir áverkar hafi verið á andliti og líkama föður hans. „Ég var orðlaus. Ég hafði aldrei séð neina ofbeldisfulla hegðun frá henni. Frekja og yfirgangur, já. En ofbeldi? Nei. Þetta kom mér algjörlega á óvart." Af hverju gerði enginn neitt? Margar spurningar vöknuðu í framhaldinu. Ekki síst eftir að í ljós kom að hjónin höfðu ítrekað leitað læknisaðstoðar vegna áverka eftir Margréti. Heilbrigðisstarfsfólk hafi farið að gruna heimilisofbeldi en hjónin hafi alltaf verið send aftur heim. Að hans mati hefi verið eðlilegra að lögregla eða hann sjálfur hefði verið látinn vita. „Af hverju gerði enginn neitt?“ Spurður hvort hann finni fyrir reiði, svarar hann játandi. „Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Að starfsfólkið sé bundið vilja fórnarlambsins til þess að kæra eða grípa til aðgerða. Mér finnst það bara ekki halda vatni. Afleiðingin er þessi; hann lætur lífið og mamman stórslösuð. Í þessum tilvikum þegar þú ert með svona aldrað fólk sem er hrætt, það kannski gerir sér ekki grein fyrir því hvaða úrræði standa þeim til boða. Þá á einhver að koma og reyna að aðstoða þetta fólk, ekki senda það aftur heim til kvalara síns.“ Fyrri þáttinn af Vítahring Margrétar Löf má heyra hér fyrir neðan. Bróðir Margrétar Löf telur að koma hefði mátt í veg fyrir að Margrét banaði föður þeirra, Hans Löf, í fyrra. Hann lýsir deginum þegar Margrét var handtekin og upplifun sinni af málinu.