Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
HIGH Attacks Viðskiptablaðið

Gátu séð millifærslur annarra viðskiptavina

A technical flaw in the mobile banking apps of Lloyds Bank, Halifax, and Bank of Scotland allowed users to view transaction histories and sensitive personal information, including National Insurance numbers and salary details, belonging to other customers. The vulnerability has been patched by the Lloyds Banking Group, but the specific app versions affected and the exact fixed versions were not disclosed in the report.
Read Full Article →

Viðskiptavinir bresku bankanna Lloyds Bank, Halifax og Bank of Scotland hafa lýst yfir áhyggjum eftir að tæknibilum í smáforritum bankanna gerði sumum notendum kleift að sjá færslur og greiðslur annarra viðskiptavina. Á vef BBC segir að bilunin hafi þegar verið lagfærð og að verið sé að rannsaka málið frekar. Lloyds Banking Group, eigandi bankanna þriggja, hefur beðist afsökunar á atvikinu en hefur ekki greint frá því hversu margir urðu fyrir áhrifum. Einn viðskiptavinur Halifax segir að hún hefði séð fjölda færslna sem hún þekkti ekki og að heildarupphæðin hefði numið meira en einni milljón punda. Sjá einnig Hvaða hluta­bréf eiga efnaðir Bretar? Önnur kona sagði í samtali við BBC að hún hefði séð nýjar upplýsingar birtast um sex mismunandi viðskiptavini Bank of Scotland á 20 mínútna fresti. Þar á meðal voru kennitölur (e. National Insurance Number) viðskiptavina og upplýsingar um viðskipti þeirra. Hún bætti við að í sumum tilvikum hafi verið hægt að sjá upplýsingar um bótagreiðslur og jafnvel upplýsingar um vinnuveitendur annarra notenda.

Share this article