Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loka Holtavörðuheiði

Read Full Article →

Vegna veðuraðstæðna er verið að loka Holtavörðuheiði. Þetta kemur fram á umferdin.is - en Vegagerðin hafði áður getið út að henni yrði lokað í kvöld. Brattabrekka er lokuð og á Vestfjörðum verður Flateyrarvegi lokað klukkan 20. Lokað er um Klettsháls, Steingrímsfjarðarheiði og Súðavíkurhlíð. Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar er von á því að færð spillist frá Snæfellsnesi að Tröllaskaga, en einnig verður hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrenglsum í nótt. Þá er von á snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum í nótt og í fyrramálið, en það dregur úr vindi og ofankomu á morgun. Fyrr var ráðist í lokun á Holtavörðuheiði en áætlað var.RÚV/Landinn / Jóhannes Jónsson

Share this article