Bubbi Morthens og Friðrik Dór – Hún Bubbi Morthens og Friðrik Dór leiða aftur saman hesta sína í nýjasta lagi Bubba sem er rómantíska ballaðan Hún. Lagið er önnur smáskífa af væntanlegri plötu Bubba Morthens sem lítur dagsins ljós í byrjun maí. Þeir félagar verða tónlistargestir í Vikunni með Gísla Marteini á föstudag þar sem þeir flytja lagið saman í fyrsta sinn opinberlega. Undiraldan fimmtudaginn 12. mars Eins og stundum áður er fínasta blanda af reynsluboltum og byrjendum með spriklandi ferska íslenska tónlist í Undiröldunni. Meðal flytjenda eru Bubbi ásamt Frikka Dór, Helgar og pönk og gleðisveitin Skátar. Vilberg Pálsson – Spánskur dagger Spánskur dagger er annað lagið sem Vilberg Andri Pálsson gefur út og það verður á fyrstu plötu hans sem er væntanleg í sumar. Lag og texti er eftir Vilberg Andra en umsjónarmaður upptöku var Albert Finnbogason, framleiðsla og eftirvinnsla var í höndum Reynis Snæs Magnússonar og Bjarna Þórs Jenssonar. Hoffmann – Fallbeygðu mig Það eru tímamót á morgun hjá hljómsveitinni Hoffmann þegar sveitin sendir frá sér fyrsta lagið á íslensku síðan Slor og skítur kom út árið 2020. Hljómsveitin var stofnuð í Eyjum 2003 og allir liðsmenn eru þaðan. Geisha Cartel – 1000 hestöfl Lagið heitir 1000 Hestöfl er frá Geisha Cartel og er fyrsta lag bandsins síðan 2021. Hljómsveitin gerði garðinn frægan hér á árum áður með smellum eins og Tveggja sæta, 10 bleikir símar og Vera ég. Geisha Cartel spilar trap-popp og er skipað þeim Eyþóri Inga Eyþórssyni, Jóni Múla og Kristjáni Steini Kristjánsson sem eru líka þekktir sem Bleache, Múli og Plasticboy. LipGlossMafia – Skiluru það? Skiluru það? er fyrsta lagið frá hlómsveitinni LipGlossMafia sem spilar danstónlist. Lagið er eftir þau Bjarka Hallbergsson og Helenu Reynisdóttur en það var unnið með Bjarka Balatron. Kyrr – Erjur Kyrr er tveggja manna hljómsveit af höfuðborgarsvæðinu, stofnuð að Jóni Dal Kristbjörnssyni og Didda Eðvarðs Vanerouis. Sveitin spilar nostalgískt synþa-rafrokk, með melódísku ívafi. Jón Dal sér um hljóðblöndun, semur tónlistina og spilar á flest öll hljóðfæri, Diddi semur söng og texta sem eru á íslensku. Salsakommúnan – Heim til þín Heim til þín er önnur smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út sumarið 2026 frá Salsakommúnunni. Lagið syngur Jakob van Oosterhaut, trompetleikari og einn söngvara sveitarinnar. Jakob segir um lagið: „Það má segja að lagið sé eins konar óður til fjarsambandsins. Það er ekkert mál að hringja eitt myndsímtal en það jafnast ekki á við að vera við hlið manneskjunnar sem þú elskar.“ Undiraldan þriðjudaginn 10. mars Eins og stundum áður er fínasta blanda af reynsluboltum og byrjendum með spriklandi ferska íslenska tónlist í Undiröldunni. Meðal flytjenda eru Bubbi ásamt Frikka Dór, Helgar og pönk og gleðisveitin Skátar. Helgar – Shout in the Dark Helgar hefur sent frá sér lagið Shout in the Dark til að fylgja eftir vinsældum lagins Absurd sem sat lengi á vinsældarlista Rásar 2 og gekk vel á streymisveitum. Lagið er önnur smáskífa af fyrstu sólóplötu Helgar sem hann stefnir á að komi út í haust. Karlotta – Norðurljós Tónlistarkonan Karlotta Sigurðardóttir hefur sent frá sér eigið lag og ljóð sem heitir Norðurljós og er á plötunni Afleiðingar sem kemur út síðar. Það er Karlotta sem framleiðir ásamt Dagbjarti Daða Jónssyni en Bjarki Ómarsson hljóðjafnaði. Asgeir O – Unicorn Tónlistarmaðurinn Ásgeir Ólafsson Lie eða Asgeir O hefur sent frá sér nýja útgáfu af laginu Unicorn eftir Ívar Bjarklind. Lagið kom fyrst út 2014 en nýja útgáfan er af væntanlegri plötu sem hefur fengið nafnið King IB. Mímir – Brightness Mímir Guðvarðsson eða bara Mímir segist semja lög sem veita jákvæðni, innblástur og jákvæð skilaboð. Lagið Brightness er frumsamið á sérstökum tíma í lífi Mímis og samið til kærustu hans og allra þeirra sem hlusta með þeim tilgangi að hleypa birtu í lífið. The sum of us – Communion The sum of us er triphop- og synþwave-verkefni frá Reykjavík, skipað framleiðandanum Friðjóni Guðlaugssyni og söngvaranum Christopher Hickey. Þeir lýsa tónlistinni sem blöndu af drungalegum söng og myndrænum hljóðheimi kvikmyndanna. Innblástur er sóttur í Massive Attack, Depeche Mode og framsækna raftónlist. Kakali – Figures Hljómsveitin Kakali er þríeyki skipað Kristjáni Árna Kristjánssyni, Árna Guðjónssyni og Daða Guðjónssyni og þeir hafa sent frá sér nýtt lag sem heitir Figures. Lagið er synþapopp með rólegri uppbyggingu þar sem píanó, kontrabassi, frönsk horn og synþar byggja lagið upp skref fyrir skref. Skátar – Dauðadjús og skyggni ágætt Hljómsveitin Skátar hefur sent frá sér lagið Dauðadjús og skyggni ágætt eftir Benedikt Reynisson. Það eru Skátar sem flytja en ásamt þeim spila Ólöf Rún Benediktsdóttir á þeremín og Thoracius Appotite á hljómborð. Undiraldan lagalisti