Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

12,2 milljónir barna drepin, særð eða án heimilis á síðustu þremur árum

Read Full Article →

Líf barns í Mið-Austurlöndum er tekið, eða því umturnað, á fimm sekúndna fresti vegna stríðsátaka. Mörg börn og fjölskyldur þeirra standa uppi slypp og snauð. Börn eru enn drepin á Gaza þrátt fyrir vopnahlé. Alls hafa yfir tólf milljónir barna ýmist verið drepin, særð eða misst heimili sín í Mið-Austurlöndum síðastliðin þrjú ár. Samkvæmt tölum frá Uniced hafa fleiri en 1100 börn verið drepin í stríðsátökum síðan 28. febrúar. Þar með talin eru 200 börn sem drepin voru í Íran, 91 í Líbanon, fjögur í Ísrael og eitt í Kúveit. Talið er líklegt að þessar tölur hækki eftir því sem stríðsátökin halda lengur áfram og dreifa sér um Mið-Austurlöndin. „Börnin í Mið-Austurlöndum hafa búið við nær viðvarandi stríð í mörg ár og núna eru um 80 milljónir barna sem búa í hættu, líka í þeim löndum þar sem er barist,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi. Rætt var við hana í kvöldfréttum RÚV. Hún segir að stofnanir líkt og skólar loki strax þegar átök hefjist. Þá séu allir innviðir í hættu, þar með taldir vatnsinnviðir sem séu sérstaklega viðkvæmir í þessum heimshluta. Þá aukist Fátækt aukist og aðgengi að næringu og heilsugæslu minnki. „Fyrir utan það að börn missa allt sem þau tengja við öryggi og stöðugleika í sínu lífi, segir hún. Sem dæmi nefnir hún að skólastarf á Gaza sé að hefjast á ný eftir að hafa verið hætt í um tvö ár. „Það er eitt barn af hverjum fimm í dag sem býr við þessar aðstæður,“ segir Birna. Líf barns í Mið-Austurlöndum er tekið, eða því umturnað, á fimm sekúndna fresti vegna stríðsátaka. Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir að sprengjunum verði að hætta að rigna og að vernda þurfi börn gegn átökum. „Hættið að setja börn í hættu“ Birna segir að vel gangi að koma neyðarbirgðum til barna á ákasvæðum miðað við aðstæður. Allir viðbragðsaðilar eru vel birgðum búnir og það eru engar hindranir í birgjakeðjunni sem er mjög sterk. En þetta eru auðvitað risastórar hörmungar, segir hún. Nú þegar hafi 65 skólar og 100 heilsustofnanir í Íran verið skemmdar eða eyðilagðar. „Þannig að viðbragðið sem þetta kallar á er risastórt og mikil uppbygging framundan,“ segir hún. Aðspurð hvað hún telji að verði að gerast til að auka öruggi barna segir hún að átökum verði að linna. „Sprengjunum verður að hætta að rigna,“ segir hún. „Hættið að setja börn og fjölskyldur þeirra í hættu,“ segir Birna sem tekur fram að börn séu vernduð samkvæmt alþjóðalögum. „Og svo þarf að fjármagna uppbygginguna og það sem fram undan er og gefa fólki frið og stöðugleika.“ Í samantekt á tölum frá Uniced segir að síðan 28. febrúar hafi hundruð almennra borgara fallið í Íran. Þar af hafa alls 200 börn verið drepin og létust 168 þeirra í árás á Shajerah Tayyebeh-stúlknaskólann. Þriðjungur þeirra sem drepnir hafa verið í átökunum eru börn. Þá hafa 584 særst í árásum og eru 54 þeirra undir fimm ára aldri. Í Líbanon hefur alls 91 barn verið drepið í árásum og 275 særst. Alls er talið að um 816 þúsund, þar af 280 þúsund börn, hafi flúið heimili sín vegna árása Ísrael á Líbanon. Mikill skortur er á vatni, dýnum, teppum og dísilolíu. Þeim sem flýja heimili sín fjölgar með hverjum klukkutíma Samhliða þessu sé ástandið í Afganistan mjög slæmt. Um þrjár milljónir Afgana hafi snúið aftur til landsins frá Íran og Pakistan vegna átaka. 60% þeirra séu fjölskyldur með börn. Talið er að um 11 milljónir barna í Afganistan þarfnist mannúðaraðstoðar.

Share this article