Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ekki bíða of lengi með að fara, tækifærið til þess gæti verið að renna út“

  • What: Icelandic authorities advise diplomatic staff and citizens to leave the Middle East due to security concerns.
  • Impact: Icelandic citizens and staff in the Middle East are advised to evacuate.
Read Full Article →

Áströlsk yfirvöld hafa fyrirskipað því starfsfólki sem ekki gegnir brýnustu skyldum að yfirgefa sendiráð landsins í Líbanon. Áður hafði sendiráðsstarfsfólki í Ísrael og Sameinuðu arabísku furstadæmunum verið skipað að gera hið sama. Jafnframt er áströlskum ríkisborgurum ráðlagt að yfirgefa Mið-Austurlönd sé þess einhver kostur. Utanríkisráðherrann Penny Wong segir ástæðuna hve sífellt dragi úr öryggi fólks vegna hernaðarátakanna. Hún bætti við að áfram væri nægt starfslið í sendiráðunum til að sinna þeim 115 þúsund Áströlum sem búa víðs vegar um heimshlutann. „Ekki bíða of lengi með að fara, tækifærið til þess gæti verið að renna út,“ sagði Wong. Ástralir hafa sagst styðja atlögur Bandaríkjanna og Ísraels komi þær í veg fyrir að Íranir framleiði kjarnorkuvopn. Jafnframt sendi ástralska ríkisstjórnin langfleyga eftirlitsflugvél til Persaflóaríkjanna til verndar ríkisborgurum sínum. Ísraelskir embættismenn segja fjórtán hafa verið drepna frá upphafi stríðsins, yfir tólf hundruð hafa týnt lífi í Íran og nokkur hundruð í Líbanon auk ellefu almennra borgara og sjö bandarískra hermanna í Persaflóaríkjunum.

Share this article