- What: U.S. and Iran continue nuclear negotiations
- Impact: Ongoing diplomatic tensions
Enn er pattstaða milli Bandaríkjanna og Íran sem reyna að ná samkomulagi um kjarnorkusamning. Sendinefndir landanna hafa undanfarið fundað í Genf í Sviss. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tjáð óánægju sína yfir sjónarmiðum Írana í viðræðum landanna um kjarnorkusamning en segist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort Bandaríkin ráðist á Íran. Trump sagði að Íranir ættu ekki að eiga kjarnorkuvopn og að hann væri ósáttur við það hvernig þeir reyni að ná samningum. Sendinefnd frá Óman vinnur að því að miðla málum milli Bandaríkjanna og Íran í Genf í Sviss. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, fer til Ísrael á mánudaginn til viðræðna við Írani. Þá hefur verið greint frá því að hluti starfsfólks í bandaríska sendiráðinu í Ísrael muni yfirgefa landið vegna spennu í Mið-Austurlöndum og hugsanlegra árása Bandaríkjanna á Íran. Helsta starfsfólk sendiráðsins verður þó áfram í Ísrael. Kanadísk og bresk stjórnvöld hafa einnig tilkynnt um sams konar ákvörðun og hluti starfsfólks sendiráða þeirra og fjölskyldur þeirra hafa verið fluttar á brott. Kína, Indland og Kanada hafa hvatt ríkisborgara sína í Íran til að yfirgefa landið á meðan þeir geta það með öruggum hætti. Þýskaland og Frakkland hafa ráðlagt ríkisborgurum sínum frá því að ferðast til Íran.