Innlent | Morgunblaðið | 13.3.2026 | 11:30 Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Tugir vindorkukosta hafa verið skigreindir víða um land og fyrsta vindorkuverið er að rísa við Vaðöldu. Ljósmynd/Col Guðmundur Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Átta áform um vindorkuver á Vesturlandi frá Hvalfjarðarsveit til Dalabyggðar eru til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Lesa má út úr nýlegu áliti stofnunarinnar um umhverfismatsskýrslu vegna eins þeirra að samlegðaráhrif þessara vindorkuvera kunni að verða veruleg á umhverfi og fuglalíf á svæðinu, þar á meðal á haferni. Skipulagsstofnun birti í febrúar álit um umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðs vindorkuvers á vegum fyrirtækisins Qair á Íslandi í landi Sólheima í Dalabyggð en það vindorkuverkefni er komið lengst í skipulagsferlinu af þeim vindorkuveraáformum sem kynnt hafa verið á Vesturlandi. Manngert yfirbragð Í álitinu er á nokkrum stöðum fjallað um möguleg samlegðaráhrif þessara fyrirhuguðu vindorkuvera. Segir þar að umfang samlegðaráhrifanna sé háð því hve mörg af þessum verkefnum verði að veruleika en hætt sé við að stór landsvæði á Vesturlandi geti tekið á sig manngert yfirbragð sem kunni að draga úr aðdráttarafli landshlutans sem ferðamannastaðar. Segir Skipulagsstofnun að verði öll áform um vindorkugarða á Vesturlandi að veruleika muni sjónræn samlegðaráhrif þeirra á fjórðunginn verða verulega neikvæð. Er m.a. vísað til nýlegrar rannsóknar á meðal ferðaþjónustuaðila þar sem komi fram að vindorkuver séu almennt talin ógn við ferðaþjónustu á Íslandi og uppbygging vindorkuvera á tiltölulega óspilltum svæðum hefði neikvæð áhrif á ímynd landsins og gæti dregið úr aðdráttarafli og samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannastaðar. Þar sem fjallað er um áhrif á landslag og ásýnd segir m.a. að samlegðaráhrif með tilliti til sýnileika geti einnig komið fram þó að tvö vindorkuver séu ekki sýnileg samtímis. Þannig sé t.d. ljóst að sé horft til allra fyrrnefndra áforma um vindorkuver muni þau blasa við eitt á fætur öðru á löngum köflum þjóðvegar eitt milli Borgarfjarðar og Húnaþings vestra. Tillit til fugla við staðarval Í álitinu er einnig fjallað um áhrif vindorkuvera á fugla sem eru sögð vera ein af neikvæðustu umhverfisáhrifum vindorkuvera, m.a. vegna áflugshættu. Segir Skipulagsstofnun að áhrifaríkasta leiðin til að lágmarka þau áhrif sé að staðsetja vindorkuver utan mikilvægra búsvæða fugla og ljóst sé að mótvægisaðgerðir muni aldrei skila sambærilegum árangri. Fjölmörg áform séu uppi um byggingu vindorkuvera á Íslandi sem geti haft neikvæð samlegðaráhrif á fugla og því sé sérstaklega mikilvægt að tekið sé tillit til fugla við staðarval. Að mati Skipulagsstofnunar kann íslenska hafarnarstofninum að stafa mikil hætta af samlegðaráhrifum uppbyggingar fyrirhugaðra vindorkuvera á helsta útbreiðslusvæði arnarins á Vesturlandi. Þá séu einnig fyrirhuguð vindorkuver á svæði sem hafi verið skilgreint sem alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir himbrima og álft. Því sé að vænta samlegðaráhrifa á þær tegundir. Skipulagsstofnun fjallar einnig í álitinu um áhrif framkvæmda á búsvæði vaðfugla, sem flokkist til ábyrgðartegunda Íslands. Þar á meðal séu ábyrgðartegundir eins og heiðlóa, lóuþræll, spói og stelkur sem eru á válista fugla vegna neikvæðrar stofnþróunar á landsvísu. Segir stofnunin að varp vaðfugla sé almennt dreift og þrátt fyrir að áhrif einstakra framkvæmda séu yfirleitt staðbundin og ekki merkjanleg á stofnvísu geti samlegðaráhrifin verið talsverð. Vindorka á Vesturlandi Áform um orkuver Vindorkuver í landi Sólheima, Dalabyggð – álit um umhverfismat liggur fyrir Vindorkugarður í Garpsdal, Reykhólahreppi – álit um umhverfismat í vinnslu Vindorkuver á Hróðnýjarstöðum, Dalabyggð – álit um umhverfismat í vinnslu Vindorkugarður á Grjóthálsi, Borgarbyggð – álit um matsáætlun liggur fyrir Vindorkugarður á Þorvaldsstöðum, Borgarbyggð – álit um matsáætlun liggur fyrir Vindorkugarður á Hælsheiði, Borgarbyggð – álit um matsáætlun liggur fyrir Brekka vindorkugarður, Hvalfjarðarsveit – álit um matsáætlun liggur fyrir Múli vindorkugarður, Borgarbyggð – álit um matsáætlun liggur fyrir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot NATO æfir á norðurslóðum og sendir Rússum skilaboð Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síminn að kaupa miðla Sýnar Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot NATO æfir á norðurslóðum og sendir Rússum skilaboð Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Vopnaður hnífi eftir rán í verslun Quang Le fær ekki að opna bankareikning Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu